Flokkur: Fréttir

TÍST dagur í Lækjarskóla

Skólasamfélagið í Hafnarfirði iðar af lífi og fjöri alla daga og hefur haustið farið einstaklega vel af stað. Verkefni innan beggja skólastiganna eru fjölbreytt og enginn dagur eins. Fimmtudaginn 10. október ætlar hluti af starfsmönnum Lækjarskóla í Hafnarfirði að leyfa áhugasömum notendum Twitter að skyggnast á bak við grunnskólatjöldin, tísta frá hefðbundnum skóladegi og gera […]

Fjölgreindarleikar í Lækjarskóla

Í upphafi vikunnar voru haldnir tveggja daga fjölgreindarleikar í Lækjarskóla. Fjölgreindarleikarnir eru haldnir í áttunda sinn og byggja sem fyrr á fjölgreindarkenningu Gardners (1983). Allir nemendur skólans taka þátt í leikunum og styðja þeir sem eldri eru yngri samnemendur sína. Fjölgreindarleikarnir eru hugsaðir sem góð og skemmtileg tilbreyting í skólastarfi, einskonar hausthátíð allra í skólanum. […]

Bóka- og bíóhátíð í fjórða sinn

Bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði er nú haldin í fjórða skipti en á nýjum tíma í október. Í ár hverfast viðburðirnir flestir um metsölubækur Gunnars Helgasonar rithöfundar sem hafa fengið framhaldslíf á hvíta tjaldinu og í leikhúsi en 19. október verður leikgerð Bjarkar Jakobsdóttur bæjarlistamanns Hafnarfjarðar 2019 á leikritinu Mamma klikk! frumsýnd í Gaflaraleikhúsinu. […]

Átt þú grenitré sem gæti orðið gleðigjafi?

Hafnarfjarðarbær óskar eftir grenitrjám í görðum sem hafa e.t.v. lokið sínu hlutverki hjá garðeigendum. Við erum að detta í jólagírinn. Ertu með tré í þínum garði sem gæti verið gleðigjafi á aðventunni? Grenitré geta orðið mjög há, breið og taka oft ansi mikið pláss í heimilisgörðunum. Íbúar eiga oft í vandræðum með þessi tré og […]

Hlaðvarpið VITINN – nýr þáttur er kominn í loftið!

Nýr þáttur Vitans er kominn í loftið. Í þessum þætti ræðir Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs við Ægi Örn Sigurgeirsson deildarstjóra  stoðdeildar í málefnum hælisleitenda og flóttafólks í Hafnarfirði.  Ægir veitir hlustendum innsýn í sína eigin sögu og bakgrunn og fjallar um þau verkefni sem hann og samstarfsfélagar hans sinna á degi hverjum og […]

Nýr deildarstjóri þróunar- og tölvudeildar

Eymundur Björnsson hefur verið ráðinn sem deildarstjóri þróunar- og tölvudeildar Hafnarfjarðarbæjar. Eymundur hefur áralanga reynslu af stjórnun upplýsingatækniverkefna m.a. frá Kaupþingi, Íslandsbanka, Össuri og nú síðast hjá Advania þar sem hann var tæknistjóri.  Í störfum sínum hjá Advania var Eymundur m.a. ábyrgðaraðili og tengiliður við Hafnarfjarðarbæ og þekkir starfsumhverfi sveitarfélagins vel. Eymundur er með BA […]

Haustsópun í Hafnarfirði

Sumar og haust er sannarlega búið að vera fallegt hér í Hafnarfirði og litirnir í náttúrunni sérlega fallegir. Nú eru lauf farin að falla af trjám og haustsópun því við það að hefjast hjá bænum. Í haustsópun er farið yfir allar götur bæjarins, þær sópaðar og reynt að ná sem stærstum hluta af laufmassanum sem […]

Endurheimt votlendis í Hafnarfirði

Verklegar framkvæmdir við endurheimt votlendis í Krýsuvíkur- og Bleiksmýri hófust í vikubyrjun og ná þær yfir um sextíu hektara svæði. Framkvæmdum í Bleiksmýri lauk í gær og hefjast framkvæmdir í Krýsuvíkurmýri í dag. Votlendissjóður hefur með útreikningum sínum áætlað að umræddar framkvæmdir bindi um 1.100 tonn af kolefni í jörðu sem nemur akstri 120 fólksbíla […]

Vígsla og afhending á verðlaunabekknum Vörður

Nýr og fallegur bekkur hefur verið settur upp á Hleinum að Langeyrarmölum við bílastæði þar sem listaverk er staðsett. Bekkurinn er liður í verkefninu Brúkum bekki, samfélagsverkefni sem staðið hefur yfir frá árinu 2013 og telur í dag rúmlega 50 bekki. Hönnuður bekkjar eru þau Reynir Reynisson, Ásdís Ýr Einarsdóttir og Erla Rún Ingólfsdóttir. Skólameistari […]

Lokað fyrir kalt vatn í ákveðnum götum

Klukkan 9:00, miðvikudaginn 3. október, verður lokað fyrir kalt vatn í Skútahrauni, Flatahrauni 21-31, Stapahrauni og Drangahrauni.  Ástæðan er bilun í kerfi sem upp kom í dag og lagfærð hefur verið tímabundið. Unnið verið að frekari lagfæringu í fyrramálið. Ef allt gengur eftir, er gert ráð fyrir að  kalt vatn verði aftur komið á á […]