Ferðafélags Íslands (FÍ) í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og hafa þann megintilgang að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. VERTU MEÐ! Lýðheilsugöngur í Hafnarfirði í […]
Flokkur: Fréttir
Nýjar sýningar í Hafnarborg
Föstudaginn 30. ágúst kl. 20 verða opnaðar tvær nýjar sýningar í Hafnarborg, annars vegar Allt á sama tíma, haustsýning Hafnarborgar, í sýningarstjórn Andreu Arnarsdóttur og Starkaðar Sigurðarsonar, og hins vegar Fangelsi, ný innsetning myndlistarmannanna Olgu Bergmann og Önnu Hallin. Hugmyndin með haustsýningu Hafnarborgar í ár, Allt á sama tíma, er að kanna hvernig listamenn takast […]
Söguganga um gamla bæinn á íslensku og pólsku
Hátt í þúsund manns hafa mætt í þær fjórtán menningar- og heilsugöngur sem Heilsubærinn Hafnarfjörður í samstarfi við Hafnarborg, Byggðasafn Hafnarfjarðar og Bókasafn Hafnarfjarðar hefur staðið fyrir nú í sumar. Nú er komið að síðustu göngunni sem verður með aðeins öðru sniði. Sama gangan tvö kvöld í röð og verður leiðsögn fyrra kvöldið á pólsku […]
Nýjungar í matarþjónustu við grunnskólanemendur
Haustið 2019 tekur við nýtt fyrirkomulag á matarþjónustu við nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar. Sami þjónustuaðili, Skólamatur ehf, sinnir þjónustunni áfram í sjö grunnskólum bæjarins en einn skóli, Áslandsskóli, annast matarþjónustuna sjálfur. Frír hafragrautur í boði í upphafi skóladags Í upphafi skóladags stendur hafragrautur með mjólk og kanil nemendum til boða frítt í öllum skólum áður […]
13.000 metrar í Hafnarfirði gegn ofbeldi á börnum
UNICEF á Íslandi boðaði í vor byltingu fyrir börn með átaki gegn ofbeldi undir yfirskriftinni Stöðvum feluleikinn. Byltingin hefur síðustu daga borist með Einari Hansberg crossfit kappa um land allt með heldur óvenjulegum hætti. Þannig hefur Einar, fjölskylda hans og vinir, stoppað í 36 sveitarfélögum á einni viku þar sem Einar hefur róað, skíðað eða […]
Kynbundinn launamunur ekki til staðar hjá Hafnarfjarðarbæ
Niðurstöður viðhaldsúttektar á jafnlaunakerfi Hafnarfjarðarbæjar sýna áframhaldandi jákvæða þróun í átt að launajafnrétti innan sveitarfélagsins. Óútskýrður launamismunur er ekki lengur til staðar og frávik minnka enn frekar milli úttekta, er nú 2%, körlum í hag og hefur þannig minnkað um 2,8% frá því að sveitarfélagið fékk jafnlaunavottun fyrir tveimur árum síðan. Viðhaldsvottun, sem framkvæmd var […]
Drög að skýrslu um skipulag miðbæjar Hafnarfjarðar
Bæjarbúum og öðrum þeim sem hagsmuna hafa að gæta, gefst möguleiki á að senda inn athugasemdir/viðbætur við fyrirliggjandi drög að skýrslu frá starfshópi um skipulag miðbæjar Hafnarfjarðar. Hægt er að senda inn ábendingar á samráðsvettvangnum Betri Hafnarfjörður, í tölvupósti á hafnarfjordur@hafnarfjordur.is eða bréfleiðis til Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði til og með 20. september 2019. […]
Bæjarstjórnarfundur 21. ágúst
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 21. ágúst. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Skólabyrjun 2019
Formlegt skólastarf nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar hefst fimmtudaginn 22. ágúst. Rétt rúmlega 4.000 börn setjast á skólabekk þetta haustið, þar af eru um 350 börn að hefja nám í 1. bekk. Að byrja í grunnskóla er stórt skref í lífi hvers barns og við slík tímamót er samstarf heimilis og skóla afar mikilvægt. Sú nýbreytni […]
Gjótur – reitir 1.1 og 1.4
Athugasemdafrestur um breytingu á deiliskipulagi hluta hverfis austan Reykjavíkurvegar í Hafnarfirði Gjótur – reitir 1.1 og 1.4. sbr. rammaskipulag samþ. 15.5. 2018 hefur verið framlengdur til 1. september 2019. Sjá nánar https://www.hafnarfjordur.is/ibuar/skipulag/skipulag-i-kynningu/gjotur-reitir-1.1-og-1.4