Category: Fréttir

Bæjarstjórnarfundur 20. janúar

Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 20. janúar 2016  kl 16:00.   Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins.

Fleiri bækur á skólabókasöfn

Fræðsluráð hefur samþykkt að leggja fram tillögu til Bæjarstjórnar þess efnis að fjárveiting til bókakaupa í skólum bæjarins og kaupa á föndurvörum verði aukin um 50% auk þess að veita 700.000.- krónum í Bíó- og bókahátíð barnanna sem fram fer nú í febrúar. Þetta er gert til að styðja frekar við læsisverkefnið sem í gangi […]

Landsleikur í lestri

Grunnskólar í Hafnarfirði setja sér sín markmið í lestri fyrir hvert skólaár til ársins 2020 sem tala saman við árangursmarkmið sveitarfélagsins í heild sinni. Markmiðasetningin er liður í því að  bæta námsárangur innan sveitarfélagsins og efla þannig læsi, virkni og námsáhuga á öllum námssviðum og námsgreinum. Unnið er að margþættum verkefnum bæði aðlöguðum verkefnum innan […]

Hafnarfjörður í Útsvari

Í kvöld keppa Hafnarfjörður og Akureyri í  spurningakeppninni Útsvari . Útsvarsteymi sveitarfélagsins í ár er hið sama og keppti fyrir hönd bæjarins í fyrra með mjög góðum árangri. Við sendum þeim Guðlaugu Kristjánsdóttur, Kristbirni Gunnarssyni og Karli Guðmundssyni okkar bestu strauma. Allir áhugasamir geta mætt í sjónvarpssal til að horfa á spurningakeppnina í beinni útsendingu […]

Hönnun og ráðgjöf

Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í hönnun og ráðgjöf vegna húss og lóðar fyrirhugaðs Hjúkrunarheimilis á Sólvangi. Stærð byggingar er áætluð 3.900 fermetrar og lóð um 5.000 fermetrar, einnig eiga bjóðendur að tengja nýbyggingu við núverandi hjúkrunarheimili. Viðauki 1 hefur verið sendur út. Útboðsgögn verða afhent hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Tilboðum skal skila á Norðurhellu […]

Heilahristingur

Homework assistance at the library. Volunteers help students with their homework! Pomoc w odrabianiu prac domowych. Wolontariusze pomagają uczniom w odrabianiu prac domowych.

Fyrirtæki vilja framkvæmdir

Mikil samstaða er meðal fyrirtækja á Hellnahrauni og Selhrauni í Hafnarfirði hvað varðar bætt öryggi og þjónustu á svæðinu. Í kringum 20 aðilar mættu á umræðufund fyrirtækjanna með bæjaryfirvöldum á dögunum þar sem nokkur mál voru rædd varðandi mikilvægar framkvæmdir í þágu öryggis auk óska um betri þjónustu í snjómokstri og samgöngum. Iðnaðarsvæðið þykir eitt […]

Ályktun um umferðaröryggi

Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðarbæjar tók til umræðu á fundi sínum í dag umferðaröryggi á gatnamótum Reykjanesbrautar og Rauðhellu/Krýsuvíkurvegar. Bókun sem lögð var fyrir fundinn byggir m.a. á áframhaldandi athugasemdum og ákalli fyrirtækja á Hellnahrauni og Selhrauni sem fram komu á umræðufundi sem boðaður var af fyrirtækjunum á svæðinu í síðustu viku. Eftirfarandi bókun var samþykkt […]

Jákvæð forvörn

Síðustu sex árin hefur Jón Ragnar Jónsson tónlistarmaður með meiru heimsótt alla nemendur í 8. bekk í Hafnarfirði.  Í ár verður þar engin breyting á og munu heimsóknir í grunnskólana eiga sér stað nú í janúar.  Heimsóknin er liður í munntóbaksforvörnum sveitarfélagsins.  Fræðsla sem hittir beint í mark Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar hefur um áraraðir unnið að […]

Innlegg í jafnréttisstefnu

Nú gefst öllum áhugasömum tækifæri til að koma með tillögur og hugmyndir að efni sem á heima í jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun Hafnarfjarðarbæjar. Innlegg óskast send eigi síðar en 31. janúar 2016. Meðfylgjandi er formlegt bréf frá starfshóp verkefnis sem skipaður var af bæjarráði Hafnarfjarðar.   Icelandic, English and Polish version of the letter can be […]