Hafnarfjörður – Árborg Posted september 8, 2015 by avista Á föstudaginn hefst spurningakeppnin Útsvar í Ríkissjónvarpinu og eru það Hafnarfjörður og Árborg sem stíga fyrst á svið. Lið okkar er vel þjálfað en þau Guðlaug Kristjánsdóttir, Kristbjörn Gunnarsson og Karl Guðmundsson munu endurtaka leikinn frá því í fyrra Nú er um að gera að senda liðinu okkar góða strauma og þeir sem vilja […]
Þjóðarsáttmáli um læsi Posted september 4, 2015 by avista Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Hafnarfjarðarbæjar, fulltrúa Heimilis og skóla í Hafnarfirði og mennta- og menningarmálaráðherra um þjóðarátak í læsi barna og ungmenna. Við undirritun á sáttmálanum lagði Rósa Guðbjartsdóttir formaður fræðsluráðs áherslu á það þurfi að vera skemmtilegt að lesa. „ Að mínu mati er það stórt verkefni að reyna að ná til fólks, […]
Fundað með bæjarstjóra Posted september 4, 2015 by avista Í dag kom Ævar Jóhannesson 10 ára nemi í Lækjarskóla til fundar við Harald bæjarstjóra til að ræða um byggingarleyfi fyrir kofa sem hann og félagar hans vildu reisa í Lárugerði sem er staðsettur fyrir neðan hús KFUMK við Hverfisgötuna. Ræddu þeir möguleikann að byggja hús í tré í garðinum en á endanum var niðurstaða […]
Bæjarbrúin hefst með ensku og stærðfræði Posted september 3, 2015 by avista Haustið 2015 hóst kennsla í tveimur námsgreinum, ensku og stærðfræði, í Flensborg sem er hluti Bæjarbrúarinnar (sjá hér neðar). Það eru nálægt 30 nemendur (af rúmlega 350 nemendum í 10. bekk í bænum) sem stunda nám í hvorri námsgreininni sem jafnframt er þá fyrsti áfangi umræddra námsgreina í nýju þriggja ára námi þar til stúdentsprófs. […]
Betra grenndargámakerfi – Aukin flokkun og stærri gámar Posted september 2, 2015 by avista Þjónusta við grenndargáma í Hafnarfirði er í útboði og er stefnt að því að nýtt og betra kerfi taki við í febrúar 2016. Breytingar verða á söfnunargámum frá 1. september og því mögulegar raskanir á þjónustu meðan verið er að skipta út gámum. Nýtt grenndargámakerfi, sem tekur við í febrúar, byggir á stærri gámum og […]
Árni Gunnlaugsson Posted september 2, 2015 by avista Við upphaf bæjarstjórnarfundar í dag var Árna Gunnlaugssonar minnst. Árni var fæddur 11. mars 1927 enn hann lést 10. ágúst 2015. Árni var bæjarfulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn 1958 – 1962 og fyrir Félag óháðra borgara frá stofnun þess 1966 – 1982. Hann var forseti bæjarstjórnar 1966 – 1968. Sat í bæjarráði 1966 – 1972 og 1973 […]
Fullur vilji til að taka á móti flóttamönnum Posted september 2, 2015 by avista Bæjarstjórn staðfesti i dag samþykkt fjölskylduráðs frá 28. ágúst síðastliðnum um fullan vilja til að taka þátt í verkefni ríkisstjórnarinnar varðandi móttöku og aðstoð við hópa flóttafólks. Bæjarstjórn fól bæjarstjóra áframhaldandi samtal við ríkisvaldið um hlutverk og aðkomu Hafnarfjarðarbæjar að verkefninu þar sem meðal annars verði horft til nýlegrar reynslu bæjarins af móttöku flóttafólks. Bæjarstjóra […]
Bæjarstjórnarfundur 2. september kl. 14.00 Posted september 1, 2015 by avista Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 24.júní kl. 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum. Dagskrá bæjarstjórnarfundar 2. september 2015.
Einivellir 3 Posted ágúst 31, 2015 by avista Hafnarfjarðarbær auglýsir fjölbýlishúsalóðina að Einivöllum 1-3 lausa til úthlutunar. Lóðin er 6967 m2 að stærð og nýtingarhlutfallið allt að 0,6 Á lóðinni er gert ráð fyrir allt að 45 íbúðum í þremur húsum. Stærðardreifing íbúða skal vera nokkuð jöfn. Verð pr. íbúð kr 3.484.642 m.v. heildarstærð húss 4180 m2. Ef mannvirki er stærra þá þarf […]
26 sóttu um tvær stöður hjá skipulags- og umhverfisþjónustu bæjarins Posted ágúst 31, 2015 by avista Hafnarfjarðarbær auglýsti fyrir skömmu stöður skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa. 13 manns sóttu um stöðu byggingarfulltrúa og 13 manns um stöðu skipulagsfulltrúa. Hér má sjá lista yfir umsækjendur. 13 manns sóttu um stöðu byggingarfulltrúa. Nafn Titill Ármann Jóhannesson Byggingarverkfræðingur Árni Jón Sigfússon Arkitekt Friðrik Friðriksson Arkitekt Friðrik Ólafsson Byggingarverkfræðingur Gunnlaugur Jónasson Arkitekt Hildur Bjarnadóttir Skipulags- og byggingarfulltrúi […]