Dagur tónlistarskólans Posted febrúar 14, 2015 by avista Laugardaginn 14. febrúar verður Dagur tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur í flest öllum tónlistarskólum landsins. Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er komin áralöng hefð fyrir dagskrá í skólanum þennan dag. Nemendur í Forskóla II koma með foreldrum sínum kl. 10.00 í Hásali þar sem kennarar skólans verða með hljóðfærakynningu, en nemendur í Forskóla II hefja flestir hljóðfæranám næsta vetur. […]
Sérstakar húsaleigubætur – endurskoðun á fyrirkomulagi Posted febrúar 13, 2015 by avista Fjölskylduráð samþykkti að fundi sínum í morgun að leggja til við bæjarstjórn að draga til baka að sinni ákvörðun um breytingu á sérstökum húsaleigubótum sem samþykkt var í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 þann 9. desember síðastliðinn. Fjölskylduráð samþykkti einnig að taka til ítarlegrar endurskoðunar fyrirkomulag á sérstökum húsaleigubótum. Farið verður yfir reglur og fjárhæðir sem […]
Markaðsstofa Hafnarfjarðar Posted febrúar 12, 2015 by avista Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í morgun var bæjarstjóra falið að hefja undirbúning að stofnun markaðsstofu fyrir Hafnarfjarðarbæ. Markmiðið með stofnun markaðsstofu er að skapa vettvang þar sem kostir bæjarins fyrir starfsemi fyrirtækja, móttöku ferðamanna, nýrra íbúa eru kynntir og um leið að efla tengslin við fyrirtæki og aðra starfssemi sem fyrir er í bænum. Rósa […]
Frítt í sund í vetrarfríinu Posted febrúar 12, 2015 by avista Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að dagana 25.febrúar – 1. mars þegar skipulagsdagur og vetrarfrí eru i leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar verði öllum veittur ókeypis aðgangur í sundlaugar bæjarins. Sjáumst í sundi í vetrarfríinu Í Hafnarfirði eru 3 almennings sundlaugar, sú elsta frá 1943, Sundhöllin við Herjólfsgötu en yngst er Ásvallalaugin sem var […]
Framúrskarandi fyrirtæki í Hafnarfirði Posted febrúar 11, 2015 by avista Síðastliðin fimm ár hefur Creditinfo unnið ítarlega greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki teljast til fyrirmyndar að teknu tilliti ýmissa þátta sem varða rekstur og stöðu þeirra. Í ár eru það 577 fyrirtæki sem komust á listann af þeim 32.691 sem skráð eru í hlutafélagaskrá, eða um 1,7% samkvæmt upplýsingum á www.creditinfo.is og þar af […]
Leiðrétting á lóðarleigu 12 lóða á hafnarsvæðinu Posted febrúar 11, 2015 by avista Um ármót var gerð sú breyting að bæjarsjóður Hafnarfjarðarkaupstaðar tók að sér að annast bókhald og fjárreiður Hafnarfjarðarhafnar sem m.a. felur í sér innheimtu lóða- og fasteignagjalda fyrir Hafnarfjarðarhöfn. Markmiðið með breytingunni var að allar stofnanir bæjarins væri í sama bókhaldskerfi og að sömu ferlar væru notaðir þegar kemur að bókhaldi bæjarins. Við breytinguna kom […]
Grunnskólahátíðin #gsh2015 Posted febrúar 10, 2015 by avista Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar fer fram Grunnskólahátíðin í Hafnarfirði. Félagsmiðstöðvarnar og skólarnir hafa staðið að þessu verkefni í áraraðir og það verið unglingum og verkefnum þeirra til sóma. Um daginn verða leiksýningar í Gaflaraleikhúsinu kl. 13:00 og 15:00. Þar sýna nemendur úr skólum bæjarins afrakstur allskonar listtengdrar vinnu. Leiksýningar kl. 13:00 eru fyrir Áslandsskóla, […]
Dagur leikskólans Posted febrúar 6, 2015 by avista Dagur leikskólans er í dag 6. febrúar og er hann haldinn hátíðlegur í leikskólum Hafnarfjarðar sem og í öðrum leikskólum landsins. Þetta er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara sín fyrstu samtök. Þetta er í áttunda skipti sem hann er haldinn og verður nú sem fyrr margt gert […]
Brettafélag Hafnarfjarðar opnar aðstöðuna Posted febrúar 4, 2015 by avista Miðvikudaginn 4. febrúar verður aðstaða Brettafélags Hafnarfjarðar við Flatahraun opnuð en innrétting aðstöðunnar hefur staðið yfir undanfarna mánuði. Aðstaðan hefur nú tekið á sig nokkuð endanlega mynd og til stendur að opna þar hjólabrettaverslun sem mun selja allt sem viðkemur hjólabrettum. Opið verður alla virka daga frá kl. 15-21 og kl. 10-18 um helgar. Hjólabrettatímar […]
Brettafélag Hafnarfjarðar opnar aðstöðuna Posted febrúar 4, 2015 by avista Miðvikudaginn 4. febrúar verður aðstaða Brettafélags Hafnarfjarðar við Flatahraun opnuð en innrétting aðstöðunnar hefur staðið yfir undanfarna mánuði. Aðstaðan hefur nú tekið á sig nokkuð endanlega mynd og til stendur að opna þar hjólabrettaverslun sem mun selja allt sem viðkemur hjólabrettum. Opið verður alla virka daga frá kl. 15-21 og kl. 10-18 um helgar. Hjólabrettatímar […]