Árlegt kóramót hafnfirskra barna, Barnakóramót Hafnarfjarðar, verður laugardaginn 14. mars í Víðistaðakirkju. Mótinu er tvískipt eftir aldri barnanna en alls munu nálægt 280 börn koma þar fram þar sem dagskráin er eftirfarandi: Kl. 12:30 Tónleikar ― yngri kórar Barnakór Hafnarfjarðarkirkju Miðkór Lækjarskóla Litlikór Öldutúnsskóla Kór Áslandsskóla Kór Víðistaðakirkju Kl. […]
Flokkur: Fréttir
Bæjarstjórnarfundur í dag kl. 14.00
Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 4.mars 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.
Hafnarfjörður heilsueflandi samfélag
Hafnarfjörður varð i dag formlegur aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag þegar bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson og Birgir Jakobsson landlæknir skrifuðu undir samstarfssamning. Í Heilsueflandi samfélagi er lögð áhersla á að vinna með fjóra meginþætti: Hreyfingu, næringu, líðan og lífsgæði „ Þetta er spennandi verkefni sem miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Hafnarfjarðarbæjar […]
Úttekt á Hafnarfjarðarhöfn
Á fundi bæjarstjórnar sem nú stendur yfir var samþykkt að fram fari úttekt á stjórnsýslu, fjármálum og rekstri Hafnarfjarðarhafnar sl. tíu ár. Úttektin verði víðtækari á hafnarsjóði en áform voru um í áður samþykktri rekstrarúttekt á stofnunum Hafnarfjarðarbæjar. Niðurstöður verða hafðar til hliðsjónar við mótun framtíðarstefnu í málefnum hafnarinnar þar sem m.a. er horft til […]
Á gráu svæði í Hafnarborg
Laugardaginn 7. mars kl. 15 verður opnuð í Hafnarborg sýning á nýjum verkum skoska hönnuðarins David Taylor. Sýningin ber yfirskriftina Á gráu svæði. David Taylor hefur vakið athygli víða um heim fyrir einstaka og framsækna hönnun. Á gráu svæði er hans fyrsta sýning hér á landi. Sýningin samanstendur af hversdagslegum hlutum eins og lömpum, klukkum […]
Markmiðið að auka menntunarstig starfsmanna í leikskólum
Fræðsluráð hefur samþykkt að fara í aðgerðir til að auka menntunarstig starfsmanna í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar. Í Hafnarfirði er hlutfall leikskólakennara í dag um 31% og aðrir með uppeldismenntun um 17%. Alls er hlutfall fagfólks því um 48% í leikskólum Hafnarfjarðar. Þótt þetta sé í hærri kantinum ef miðað er við önnur sveitarfélög vantar talsvert upp […]
Frábæru málþingi lokið
Í gær var haldið málþingi um læsi fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla í Hafnarfirði á skipulagsdegi þeirra. Nálægt 900 starfsmenn leik- og grunnskóla bæjarins, auk gesta, sátu þingið og var almenn ánægja með fyrirlestrana og málstofurnar sem i boði voru. Málþingið var hluti af læsisverkefni bæjarins sem farið var af stað með á síðasta […]
Símtalagögn tóku eingöngu til númera sem bærinn greiðir að fullu
Í tilefni af umræðu um athugun Hafnarfjarðarbæjar á símtölum úr símkerfi bæjarins vill Hafnarfjarðarbær koma eftirfarandi á framfæri: Gögn frá Vodafone til Hafnarfjarðarbæjar tóku ekki til símanúmera þar sem þak er á greiðsluþátttöku bæjarins og náðu því til mun færri símanúmera en áður hefur komið fram í fjölmiðlum. Í yfirlýsingu Vodafone til bæjarins, segir m.a. […]
Hádegistónleikar í Hafnarborg
Viðar Gunnarsson kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg þriðjudaginn 24. febrúar kl. 12 ásamt Antóníu Hevesi píanóleikara. Á tónleikunum sem bera nafnið Ást og bænir mun Viðar flytja þekktar ítalskar aríur eftir W. A. Mozart, G. Donizetti og G. Verdi. Þetta verða fyrstu hádegistónleikarnir eftir áramót en fyrr á þessu tónleikaári komu fram Elmar Gilbertsson, […]
Markmiðið að bæta námsárangur
Á fundi fræðsluráðs í morgun var samþykkt að efna til samstarfs við leik-og grunnskólana í bænum um nýtt þróunarverkefni sem beinist að því að bæta námsárangur í öllum skólum bæjarins. Þróunarverkefnið er hugsað til tveggja ára og beinist að því að efla læsi, virkni og námsáhuga á öllum námssviðum og námsgreinum, með sérstakri áherslu á […]