Foreldrar verum samtaka – munum útivistarreglurnar

Fréttir

12 ára og yngri mega vera úti til klukkan 22 á kvöldin. 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Þetta eru sumarreglurnar. Foreldrum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnunum sínum reglur um styttri útivistartíma.

Sumarútivistartími barna og unglinga 

Hafnarfjarðarbær tekur undir með Saman-hópnum og bendir á að samvera er besta sumargjöfin.

Frá og með 1. maí mega 12 ára og yngri vera úti til klukkan 22 á kvöldin. 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum.

Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnunum sínum reglur um styttri útivistartíma.

Útivistarreglurnar í barnaverndarlögum

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi tíu tíma svefn á nóttu.

Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í símanum eða tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið. Samkvæmt 92. grein barnaverndarlaga eru útivistartímar barna (0 -18ára) sem hér segir:

Útivistartími yfir sumartímann (1. maí til 1. september)

  • 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 22
  • 13 til 16 ára mega vera úti til kl. 24

Útivistartími yfir vetrartímann (2. september – 30. apríl)

  • Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 20
  • Börn 13 til 16 ára mega vera úti til kl. 22

Verum samtaka!

Ár hvert hefur SAMAN hópurinn (samanhopurinn.is) hvatt foreldra til að kynna sér þær reglur sem gilda um útivistartíma barna og unglinga. Aðaláherslan hefur verið lögð á breytingar á haustin þegar hópurinn stendur fyrir birtingu auglýsinga til að minna foreldra og börn á breytingu á útivistartíma.

Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur foreldra til að standa saman og virða útivistarreglurnar.

Ábendingagátt