Gítarveisla Bjössa Thor rótfest í Hafnarfirði

Fréttir

Hafnarfjarðarbær og Björn Thoroddsen gítarleikari hafa handsalað samstarf um Gítarveisluna sem haldin hefur verið í tvo áratugi og fer fram í Ægi 220 í gamla Íshúsinu við Strandgötu dagana 2. og 3. október. Margir af allra fremstu gítarleikurum landsins stíga á svið.

Gítarveislan rótfest í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær og Björn Thoroddsen gítarleikari hafa handsalað samstarf sem styrkir rekstrargrundvöll Gítarveislunnar til þriggja ára. Gítarveislan fer fram í Ægi 220 í gamla Íshúsinu við Strandgötu dagana 2. og 3. október. Margir af allra fremstu gítarleikurum landsins stíga á svið.

„Samstarfið við bæinn breytir öllu fyrir mig, því ég þarf ekki lengur að reka hátíðina á heimilisbókhaldinu,“ segir Björn Thoroddsen, betur þekktur sem Bjössi Thor.

Hátíðin á um tveggja áratuga sögu en fyrsta Gítarveislan var haldin árið 2006. Heimsþekktir gítarleikarar hafa komið fram í gegnum árin, meðal þeirra Robben Ford, Tommy Emmanuel og Mike Stern. Að þessu sinni er íslenskt tónlistarfólk í aðalhlutverki.

„Hingað hafa komið erlendir stórsnillingar og núna er þetta íslensk hátíð með rjómanum af íslenskum gítarleikurum,“ segir Bjössi, sem var einmitt bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar árið 2022.

Frá Holtsgötu á tónleikasvið heimsins

Björn Thors ákvað á hinni hafnfirsku Holtsgötu að verða gítarleikari. Hann stofnaði hljómsveit með strákunum í götunni. Síðar tók hann bláa Landleiðastrætóinn til Reykjavíkur til að hitta aðra tónlistarmenn og máta sig við þá bestu.

Eftir áralangan feril og samstarf við marga fremstu gítarleikara heims er honum kært að efla tónlistarlífið þar sem allt hófst. „Hérna byrjaði ég og ætlun mín er að láta gott af mér leiða og vona ég því innilega að Gítarveislan verði innblástur fyrir einhverja unga gítarleikara eins og mig á sínum tíma,“ segir hann.

Gítarveislan er þegar komin í samstarf við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Flensborg. Þá er unnið að hljómsveitanámskeiði fyrir Hafnfirðinga og verður fyrsti afraksturinn kynntur á tónleikunum í Ægi 220, þar sem ungur hafnfirskur gítarleikari kemur fram með þeim eldri.

Gullnöglin og tónlist Jimi Hendrix

Dagskráin hefst föstudaginn 2. október með afhendingu Gullnaglarinnar. Viðurkenningin hefur verið veitt fjölda gítarleikara í gegnum árin, meðal annars Björgvini Gíslasyni, Ólafi Gauki og Bubba Morthens.

Tónleikar kvöldsins verða helgaðir tónlist Jimi Hendrix. Guðmundur Pétursson, Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir og Bjössi Thor koma fram.

Laugardagskvöldið 3. október stíga Krummi, Andrés Þór, Börkur Hrafn og Bjössi Thor á svið. „Og ég útiloka ekki að leynigestur líti við. Annað eins hefur gerst,“ segir hann hressilega.

Gítarveislan hóf göngu sína með áherslu á djass og hljóðfæraleik en hefur með árunum þróast í fjölbreytta tónlistarhátíð þar sem söngur og önnur hljóðfæri fá einnig sitt pláss. Gítarinn er þó áfram í aðalhlutverki.

„Veislan er einmitt haldin til að minna á hvað gítarinn er flott hljóðfæri,“ segir Bjössi.

 

Ábendingagátt