Glæný sýning og samstarfið við Gaflaraleikhúsið tryggt
Björk Jakobs, Salka Sól og Selma Björns snúa aftur á svið með sýninguna Bíddu bara – ÞETTA REDDAST nú í október. Verkið verður frumsýnt í Bæjarbíói 8. október. Hafnarfjarðarbær og Gaflaraleikhúsið hafa gert nýjan þriggja ára samstarfssamning um leiklistarstarfsemi í bænum.
Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði
Björk Jakobs, Salka Sól og Selma Björns snúa aftur með nýja sketsa- og uppistandssýningu undir nafninu Bíddu bara – þetta reddast. Fyrri sýning þeirra Þetta reddast naut mikilla vinsælda en þessi nýja verður frumsýnd í Bæjarbíói 8. Október.
„Þetta lítur vel út. Við vorum að renna sýningunni í gegn fyrir ljósamanninn okkar,“ segir Björk þegar við náðum á hana í gær. „Við erum komnar út úr kvíðaþokunni og farnar að hafa gaman. Já stressið kemur alltaf þegar samið er nýtt. Maður veit ekki hvernig móttökurnar verða en höfum nú sleppt og erum komnar í trúnóhláturkast,“ segir Björk.
Þær stöllur hafa safnað nýjum sögum úr lífinu: Salka er orðin tveggja barna móðir, Selma komin á breytingaskeiðið og Björk orðin amma. Þær lofa hlátri og sýningu þar sem málefni líðandi stundar fá að flakka.
„Fullt af nýjum frumsömdum lögum“ segir Björk og að Máni Svavars sé með tónlistina. „Sonur Ellýjar Vilhjálms, geggjaður heilalímskall. Þetta eru stuðlög,“ segir hún.
Dillandi hlátur og ekki bara fyrir konur. „Þetta er skemmtilegt fyrir okkur öll. Karlar, tæknimennirnir okkar, hlæja núna af sér rassinn. Já, þetta er sýning sem hentar frá fermingu og upp úr. Allir geta hlegið,“ segir Björk.
„Svo var gaman að heyra frá einum núna í rennslinu að þetta framhald af fyrri sýningunni væri svo fullkomið frá því sem við gerðum síðast.“
Samstarf um leikhúslíf í Hafnarfirði
Björk er með mörg járn í eldinum. Hafnarfjarðarbær og Gaflaraleikhúsið hafa gert samstarfssamning sem gildir til ársloka 2028. Markmið hans er að styðja við fjölbreytt leikhúslíf í Hafnarfirði allt árið um kring og glæða áhuga bæjarbúa á leiklist og öðrum sviðslistum.
„Þetta er frábært,“ segir hún. „Við höldum áfram að sinna list.“ Auk sýningarinnar verði Gunni og Felix með jólatónleika. Já, Gaflaraleikhúsið mun standa fyrir reglulegum sýningum, að jafnaði einni til tveimur uppfærslum á ári.

Fremri röð: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir og Björk Jakobsdóttir. Aftari röð: Steinar Bragi Sigurjónsson, Gunnar Helgason, Orri Björnsson og Alexander Árnason.
Sérstök áhersla verður lögð á börn og ungmenni, meðal annars með leiklistarnámskeiðum fyrir 7–12 ára börn, sviðslistakennslu fyrir nemendur í 8.–10. bekk og samstarfi við Vinnuskóla Hafnarfjarðar um listhópastarf á sumrin. Ungt hafnfirskt sviðslistafólk og leikhópar munu einnig geta fengið ókeypis æfingaaðstöðu hjá þessu hafnfirska leikhúsi.
Leitað að rétta leikhúsinu
Og samningurinn kveður einnig á um að Hafnarfjarðarbær haldi áfram leit að framtíðarhúsnæði fyrir þetta hafnfirska leikhús.
„Við óskum þess heitast að við finnum nýtt framtíðarhúsnæði fyrir leikhús í Hafnarfirði. Að því er stefnt,“ segir Björk. „Við erum sannarlega starfandi að menningu í Hafnarfirði þótt við höfum ekki fast leiksvið. Við erum með mikla reynslu og margt spútnik hafnfirskt listafólk stendur fremst í sviðslistalandsliðinu; Ebba Katrín, Berglind Alda, Mikael, Eygló Hilmars,“ segir hún og nefnir nokkra.
„Já, við erum með eldgos af fólki og höfundum. Svo erum við með brjálaða reynslubolta. Nú er sóknarfæri. Leikhús þarf rétt fólk og sprúðlandi sköpun. Það væri gaman að nýta hafnfirsku leiklistarhæfileikana sem hafa komið úr starfinu.“
Já, leiklistin lifir í Hafnarfirði.
- Viltu sjá sýninguna. Skoðaðu þá á Stubbur.is og Baejarbio.is.