Glær poki fyrir úrgang

Fréttir

Aukin áhersla er nú lögð á að pappír, pappi, tau og klæði fari í endurvinnslufarveg í stað urðunar. Aðeins er tekið við úrgangi í glærum pokum sem auðvelda flokkun og draga úr úrgangi til urðunar

Frá og með byrjun febrúar hefur áhersla verið lögð á að pappír, pappi, tau og klæði fari í endurvinnslufarveg í stað urðunar. Ekki er lengur leyfilegt að henda svörtum ruslapokum í pressugáminn og aðeins tekið við úrgangi í glærum pokum. Glær poki auðveldar starfsmönnum að leiðbeina viðskiptavinum við flokkun og draga þannig úr úrgangi til urðunar. 

Pappír og föt allt of stór hluti af „ruslinu“

Á hverju ári er framkvæmd rannsókn á þeim úrgangi sem fer til urðunar hjá SORPU með það fyrir augum að skoða hvar hægt sé að ná betri árangri, hvar hægt er að auka endurvinnslu og hvar tækifæri liggja til að draga úr kostnaði samfélagsins vegna úrgangsmeðhöndlunar. Sýni eru m.a. tekin úr blönduðum úrgangi frá heimilum og hlutfall mismunandi efnistegunda metið.

Aukið magn pappírs og pappa til endurvinnslu

Á undanförnum árum hefur umtalsverðum árangri verið náð í að minnka pappírsúrgang til urðunar. Pappírsefni hafa farið úr því að vera um 30% af innihaldi gráu heimilistunnunnar árið 2007 í að vera aðeins um 11% árið 2015. Bláa tunnan, sem nú stendur öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu til boða undir pappírsefni, er þar stærsti áhrifavaldurinn. Á milli áranna 2014 og 2015 jókst endurvinnsla á pappírsefnum um rúm 5%. Enn fara þó tæplega 17 kg af pappírsefnum á hvern íbúa í gráu tunnuna árlega, svo tækifæri er til að gera töluvert betur og draga enn frekar úr sóun.

Minna magn fari í urðun frá endurvinnslustöðvum

Á endurvinnslustöðvum fer árlega fram greining á sýnum úr gámi nr. 66, sem er fyrir pressanlegan úrgang til urðunar. Þar er hlutfall pappírsefna enn hærra en í gráu heimilistunnunni, eða um 18%. Fatnaður og ýmiskonar vefnaðarvara er einnig stór hluti þess sem berst í gám nr. 66 á endurvinnslustöðvum, eða um 15%.  Markmið ársins 2016 er að draga úr urðun á vefnaðarvöru og pappírsefnum frá endurvinnslustöðvum. Urðun á þessum efnum felur í sér sóun á hráefnum, auk þess sem förgun þeirra kostar samfélagið meira en ef þau færu í endurvinnslu. Til þess að ná þessu markmiði hefur verkefnið „minna í urðun frá endurvinnslustöðvum“ verið sett af stað en það felur í sér innleiðingu glærra poka og að hætt verður að taka við vefnaðarvöru og pappírsefnum til urðunar.

Glærir pokar leiða til aukinnar endurvinnslu

Í því skyni að auðvelda starfsmönnum endurvinnslustöðva að leiðbeina við flokkun og auka endurnýtingu er mælst til þess að viðskiptavinir hætti notkun svartra plastpoka undir blandaðan úrgang og noti þess í stað glæra poka fyrir úrgang sem nauðsynlega þarf að vera í poka. SORPA mun í upphafi árs gefa viðskiptavinum endurvinnslustöðva 100% endurunninn glæran poka í kynningarskyni. Í framhaldinu sjá viðskiptavinir svo sjálfir um að útvega sér glæra poka.

Samfélagslegt verkefni

Vefnaðarvara og pappírsefni sem fóru til urðunar í gegnum gráu heimilistunnuna og í gám 66 á endurvinnslustöðvum árið 2015 voru samanlagt um 7000 tonn eða yfir 30 kg á hvern íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Á öllum endurvinnslustöðvum eru gámar frá Rauða krossi Íslands fyrir föt og hvers konar klæði. Rauði krossinn getur tekið við allri vefnaðarvöru, hvort sem um er að ræða heilan fatnað eða slitinn, handklæði, rúmföt eða annað þess háttar. Það sem ekki er hægt að endurnota fer í endurvinnslu og er þá hráefni í tuskur, teppi og fleira. Pappír og pappi sem flokkaður er til endurvinnslu fer til Svíþjóðar þar sem hann er hráefni í framleiðslu á dagblaðapappír, pappaumbúðum, bréfþurrkum og ýmsu nytsamlegu. Endurnýting þessara efna sparar orku, vatn og aðrar náttúrulegar auðlindir, auk þess sem dregið er úr losun gróðurhúsalofttegunda og mengandi efna. Samfélagsleg ábyrgð okkar allra liggur því í að flokka þessi efni og skila til endurnýtingar. 

 

Ábendingagátt