Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Vinnuskóli Hafnarfjarðar tók í dag í fyrsta sinn á móti Grænfánanum, umhverfisviðurkenningu frá Landvernd fyrir árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Vinnuskólinn hefur nú í eitt ár unnið markvisst að því að öðlast þessa viðurkenningu meðal annars fyrir ríka áherslu skólans á umhverfisfræðslu, umhverfisverndun, endurnýtingu og orkusparnað.
Vinnuskóli Hafnarfjarðar tók í dag í fyrsta sinn á móti Grænfánanum, umhverfisviðurkenningu frá Landvernd fyrir árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Vinnuskólinn hefur nú í eitt ár unnið markvisst að því að öðlast þessa viðurkenningu meðal annars fyrir ríka áherslu skólans á umhverfisfræðslu, umhverfisvernd, endurnýtingu og orkusparnað. Við afhendinguna las Geir Bjarnason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, upp ljóðið Grjót. Mosi. Vatn. eftir Anton Helga Jónsson.
„Allir geta gert eitthvað en enginn getur allt“ er slagorð Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Sumarið 2015 markar fyrsta tímabilið sem Vinnuskóli Hafnarfjarðar tekur þátt í Grænfánastarfinu. Flokkstjórar Vinnuskóla byrjuðu á því að setja saman sérstakan umhverfishóp, með ungmennum á aldrinum 15-18 ára, sem sinnir meðal annars því mikilvæga hlutverki að sjá umhverfisfræðslu með flokkstjóra. Umhverfishópurinn starfar sem umhverfisnefnd yfir sumarið og fundar þannig reglulega með viðeigandi aðilum þar sem árangur í flokkun, fræðslu og verndun er meðal annars ræddur. Meðal ákvarðana umhverfishóps er að vinna með það fyrir augum að „ekkert sé einnota“ og að úrgangur sé minnkaður. Umhverfishópurinn hefur frá síðasta sumri sett upp vel merktar flokkunartunnur, moltutunnu og losað skólann við öll umhverfisspillandi efni auk þess að bera áfram þekkingu og fræðslu til annarra ungmenna sem við skólann starfa og áfram út í samfélagið. Verkfæri hafa verið endurnýtt, allri notkun á einnota plasti og pappa hætt og margnota mál tekin í notkun í staðinn. Umhverfishópurinn sá til þess að sett markmið næðust með reglulegu eftirliti, upplýsingum og endurgjöf auk þess að starfa eftir aðgerðaáætlun.
Vinnuskólinn starfar ekki eins og hefðbundinn skóli heldur vinnur með óhefðbundnar aðferðir eins og jafningjafræðslumódelið sem í grunninn gengur út á það að „ungur fræðir ungan“. Lögð er áhersla á að sýna og kynna hafnfirskum ungmennum fyrir því hvernig allt passar saman í „stóru myndina“. Sjálfbærni, lýðræði, mengun, matarsóun, tískusóun, gróðurhúsaáhrif og loftlagsbreytingar eru meðal málefna sem í umræðu eru innan hópsins. Áhersla er lögð á góða og innihaldsríka fræðslu til ungmenna í umhverfishópi svo þau geti haldið áfram að fræða önnur ungmenni. Árangur kennslu er síðan kannaður með könnun. Hópurinn hélt starfi sínu áfram allt síðasta sumar, færði fræðslu heim til fjölskyldu og vina, kynntu starf sitt til bæjarbúa, ungmenna á námskeiðum ÍTH, bæjarráðs Hafnarfjarðarbæjar, starfmanna bæjarins og fleiri aðila. Þá hefur hópurinn haldið skiptimarkað, verið með andlitsmálningu fyrir börn þar sem þemað var „móðir jörð“ og gert plakat sem vísar til framlags einstaklingsins og umhverfismeðvitundar hans. Að auki tók hópurinn þátt í hálendisverkefni Landverndar „Hjarta Landsins“ sem fól m.a. í sér fræðslu til gesta og gangandi við Strandgötuna í Hafnarfirði. Eftir vinnu umhverfishóps síðasta sumar stendur eftir hvorutveggja umhverfissáttmáli og umhverfisstefna fyrir vinnuskólann. Sáttmáli sem settur var í upphafi til að marka leiðina og stefna sem unnin var jafnt og þétt yfir sumarið.
Umhverfissáttmáli Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Umhverfisstefna Vinnuskólans
Um Grænfánann
Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að auka umhverfismennt og styrkja menntun til sjálfbærni í skólum. Skólar ganga í gegnum sjö skref í átt að aukinni umhverfisvitund og sjálfbærni. Þegar því marki er náð fá skólarnir að flagga Grænfánanum til tveggja ára og fæst sú viðurkenning endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er viðurkenning sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum og sjálfbærni innan skólans. Jafnframt sýnir reynslan að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri. Grænfánaverkefninu á Íslandi er stýrt af Landvernd sem er aðili að alþjóðlegu samtökunum FEE. Stýrihópur um Grænfána er Landvernd til fulltingis um allt sem viðkemur verkefninu.
Hefur þú áhuga á garðræktun? Langar þig að gera eitthvað öðruvísi og spennandi í sumar? Viltu taka þátt í verkefni…
Matjurtagarðar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum íbúum Hafnarfjarðar gegn vægu gjaldi. Hér um að ræða frábært tækifæri fyrir einstaklinga og fjölskyldur…
Kjörfundur í Hafnarfirði vegna forsetakosninganna 1. júní 2024 hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli,…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbær veitti á dögunum sex styrki úr Húsvendarsjóði. Styrkirnir eru til viðhalds og endurbóta og námu þeir…
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku að lækka gjaldskrár sveitarfélagsins frá og með 1. maí 2024.…
Hver er Ebba Katrín? „Hún er þriggja bræðra systir. Ólst upp í Setbergi í Hafnarfirði, alla mína barnæsku,“ svarar bæjarlistarmaður…
Samfélagslöggur Hafnarfjarðar heimsækja nú 7. bekki í grunnskólum Hafnarfjarðar og veita nemendunum fræðslu um ofbeldi, vopnaburð, einelti og hótanir. Samfélagslöggæsla…
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu…
Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en föstudaginn 17. maí kl. 15.
Gleðilegt sumar kæru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar. Heilsubærinn Hafnarfjörður fagnar sumarkomunni með sumarhátíð í Hafnarfirði. Hátíðarhöldin hefjast kl. 12 með…