Hafnarfjarðarbær auðveldar uppbyggingu í bænum
Hafnarfjarðarbær hefur stigið skref til að efla uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Bæjarstjóri segir forsendur skapaðar til að sjá fleiri verk í framkvæmd.
Uppbygging í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær hefur stigið skref til að efla uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Þetta er skref sem auðveldar fólki að byggja í bænum. Með breytingunni verður næstu tvö árin heimilt að bjóða upp á sveigjanlegra greiðslufyrirkomulag gatnagerðar- og byggingarréttargjalda en verið hefur. Bæjarráð samþykkti þetta á fundi sínum fyrr í mánuðinum.
Heimilt verður að dreifa greiðslu gatnagerðar- og byggingarréttargjalda á allt að fjóra gjalddaga yfir allt að 24 mánaða tímabil. Greiðslan var áður almennt innt öll af hendi í einu. Heimildin getur tekið til sérbýla, fjölbýlishúsa, atvinnuhúsnæðis og stærri uppbyggingarverkefna. Jafnframt verður mögulegt að tengja greiðslur við framvindu framkvæmda eða tiltekna verkáfanga.
„Við viljum bregðast við þeim aðstæðum sem nú ríkja á byggingarmarkaði og skapa betri forsendur fyrir því að framkvæmdir geti hafist fyrr. Markmiðið er að styðja við áframhaldandi uppbyggingu í Hafnarfirði,“ segir Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.
Hærri vextir, aukinn fjármagnskostnaður og þrengri lánsfjárskilyrði hafa á síðustu misserum gert mörgum framkvæmdaraðilum erfiðara fyrir að ráðast í ný verkefni. „Með því að dreifa greiðslubyrði á fyrstu stigum framkvæmda er vonast til að fleiri verkefni fari af stað og að uppbygging í sveitarfélaginu haldi áfram þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður,“ segir Þórður.
Tillagan felur ekki í sér lækkun eða niðurfellingu gatnagerðar- og byggingarréttargjalda heldur eingöngu breytingu á því hvenær greiðslur falla í gjalddaga. Sveitarfélagið heldur því áfram fullum rétti til innheimtu gjaldanna og verður greiðsludreifing háð skýrum reglum um meðal annars tryggingar, verðbætur og önnur skilyrði sem vernda fjárhagslega hagsmuni Hafnarfjarðarbæjar.
Lagt er til að heimildin verði tímabundin og gildi í tvö ár. Að þeim tíma loknum verður árangurinn metinn og ákvörðun tekin um hvort heimildin verður framlengd, gerð varanleg eða felld niður.