Hafnarfjarðarbær gerist heilsueflandi vinnustaður

Fréttir

Hafnarfjarðarbær ætlar á næstu tveimur árum að leggja enn frekari áherslu á heilsu og vellíðan starfsfólks og fer því af stað með verkefnið Heilsueflandi vinnustaður á vegum Embættis Landlæknis. Vegferðin hófst með innihaldsríkri og hvetjandi kvöldstund í Bæjarbíó í síðustu viku. Í samstarfi við fyrirtækið Saga Story House býður Hafnarfjarðarbær starfsfólki bæjarins í þrjár leiddar kyrrðargöngur í maí í upplandi Hafnarfjarðar þar sem gengið verður með vatni, með höfða og með skógi.

Vegferðin hefst með kvöldstund, heilsueflandi tilboðum og kyrrðargöngum 

Hafnarfjarðarbær ætlar á næstu tveimur árum að leggja enn frekari áherslu á heilsu og vellíðan starfsfólks og fer því af stað með verkefnið Heilsueflandi vinnustaður á vegum Embættis Landlæknis. Vegferðin hófst með innihaldsríkri og hvetjandi kvöldstund í Bæjarbíó í síðustu viku þar sem Björgvin Franz Gíslason leikari og Jóna Hrönn Bolladóttir prestur stigu m.a. á svið með hugvekju, hugleiðslu og hvatningu. Fyrirtæki í Lífsgæðasetri St. Jó kynntu þjónustu sína og heilsueflandi tilboð til starfsfólks m.a. í formi hugleiðslu, ráðgjafar, samtalsmeðferða og Yoga. Í samstarfi við fyrirtækið Saga Story House býður Hafnarfjarðarbær starfsfólki bæjarins í þrjár leiddar kyrrðargöngur í maí í upplandi Hafnarfjarðar þar sem gengið verður með vatni, með höfða og með skógi.

IMG_3895

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri bauð starfsfólk velkomið til kvöldstundar.  Stýring kvöldstundar var í höndum Írisar Eiríksdóttur eiganda Yogahússins í Lífsgæðasetri St. Jó.  

IMG_3985


Hinn orkumikli og líflegi Björgvin Franz Gíslason leikari flutti erindi sem bar yfirskriftina Okið undan sjálfum mér. Þar fjallaði hann á einlægan hátt um það hvernig hann hefur fetað áður óþekktar slóðir til að ná innri ró í annars mjög annasömu höfði og hugsunum með jóga og hugleiðslu.  Björgvin Franz leiddi starfsfólk í gegnum Fimmuna sem er hans uppáhalds hugleiðsluæfing og söng að lokum lag með Ragga Bjarna.

Árangursrík innleiðing hefur umtalsverð áhrif á alla

„Hafnarfjörður hefur verið heilsueflandi samfélag síðan 2015 og nú viljum við taka næsta skref og gerast heilsueflandi vinnustaður. Fjárfesta enn betur í fólkinu okkar. Margar starfsstöðvar bæjarins leggja nú þegar ríka áherslu á heilsueflingu starfsfólks og eru að gera mjög góða hluti. Starfsmannavelta á þessum stöðum er almennt minni og ánægja og vellíðan almennt meiri. Við viljum að öllum líði vel í vinnunni og ætlum að leggja okkar að mörkum við að ýta undir og skapa sem best vinnuumhverfi á öllum okkar starfsstöðvum. Hér spilar starfsfólkið sjálft líka stórt hlutverk og er verkefnið sameiginlegt verkefni allra. Þetta snýst líka um ákvörðun hvers og eins og rétt hugarfar“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. „Fyrsta skrefið er að reyna að framkalla ákveðna núllstillingu núna í maí eftir öðruvísi og annasama tíma í heimsfaraldri þannig að fólkið okkar geti betur notið í faðmi fjölskyldu og vina. Vellíðan, jákvæðni og ánægja hefur keðjuverkandi áhrif á allt fólkið okkar. “

IMG_3994Jóna Hrönn Bolladóttir prestur mætti til kvöldstundar með hugvekju og hugleiðingar um áhrif heimsfaraldurs á frumþarfir fólks; á líðan, tengsl og tilgang.  Hugleiðing sem var til þess fallin að fá starfsfólk til að staldra við um stund, hugsa og tengja.  Hér er Jóna Hrönn með Rósu Guðbjartsdóttur í Bæjarbíó þar sem kvöldstundin var haldin. 

Heilsueflandi vinnustaður er verkfæri sem gerir vinnustöðum kleift að nálgast markvisst og skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsu og vellíðan til góðs, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði. Ef innleiðing tekst vel græða allir. Bætt heilsa, aukin vellíðan og starfsánægja, færri slys og sjúkdómar, aukin starfsgeta, aukin framleiðni, færri fjarvistir og veikindadagar, aukin hugmyndaauðgi og nýsköpun svo fátt eitt sé nefnt. Heilsuefling á vinnustöðum er góð fjárfesting í mannauði.

Heilsuefling verður sjálfsagður hluti af stefnu bæjarins

Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélagi landsins með rúmlega 30.000 íbúa og um 2500 starfsmenn sem sinna fjölbreyttum störfum á um 70 starfsstöðvum um allan bæ. Þegar eru nokkrir leikskólar og grunnskólar í Hafnarfirði orðnir heilsueflandi og heilsuefling orðin hluti af nýrri heildarstefnu bæjarins til ársins 2035. Auglýst hefur verið eftir verkefnastjóra til að leiða innleiðingu á verkefninu og vinna í nánu samstarfi við starfsfólk á öllum þessum 70 starfsstöðvum. Heilsueflingin mun m.a. ná til hreyfingar og útiveru, mataræðis, umhverfis og stjórnunarhátta. Fjölbreytileiki starfsstaða bæjarins kallar á sértæka greiningu á tækifærum og aðgerðum til eflingar á mannauði á hverjum stað. Reiknað er með að verkefnið hefjist af fullum krafti í lok ágúst. 

Ábendingagátt