Hafnarfjarðarbær með iðkendum Bjarkanna í liði
Hafnarfjarðarbær þekkir þrönga fjárhagsstöðu Fimleikafélagsins Bjarkar. Starf Bjarkar skiptir fjölmörg hafnfirsk börn og fjölskyldur þeirra miklu máli.
Starfsemi fimleikafélagsins Bjarkar mikilvægt
Hafnarfjarðarbær þekkir þrönga fjárhagsstöðu Fimleikafélagsins Bjarkar. Fréttir af uppsögnum þjálfara fimleikafélagsins vekja skiljanlega áhyggjur hjá iðkendum, foreldrum og starfsfólki félagsins.
Starf Bjarkar skiptir fjölmörg hafnfirsk börn og fjölskyldur þeirra miklu máli. Hafnarfjarðarbær á húsnæðið sem Bjarkirnar starfa í og reka. Bærinn styrkir einnig félagið með þjónustusamningi sem miðast við fjölda iðkenda. Samningurinn er áþekkur öðrum samningum við íþróttafélög í Hafnarfirði.
Björk er þriðja stærsta íþróttafélag Hafnarfjarðar og það félag sem flestar stúlkur í bænum æfa hjá. Bærinn leggur áherslu á að standa vörð um mikilvægt starf fyrir börn og ungmenni á meðan fjárhagsstaðan er skoðuð og hefur boðið félaginu rekstrarráðgjöf til að ná aftur rekstrarhæfni.