Hafnarfjörður tekur á móti allt að 450 flóttamönnum

Fréttir

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði og áframhaldandi samstarf í málaflokknum. Samkvæmt samningnum mun Hafnarfjarðarbær taka á móti allt að 450 flóttamönnum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði og áframhaldandi samstarf í málaflokknum. Samkvæmt samningnum mun Hafnarfjarðarbær taka á móti allt að 450 flóttamönnum.

Hafnarfjarðarbær býr að dýrmætri reynslu og þekkingu í málaflokki flóttafólks

Markmiðið með samræmdri móttöku flóttafólks er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð til að vinna úr áföllum og að fólk fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, samfélagsfræðslu og námi, þ.m.t. íslenskunámi. Fagleg móttaka kallar á virkt samtal og samvinnu allra hlutaðeigandi aðila. Hafnarfjarðarbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem samþykkti þátttöku í tilraunaverkefni um samræmda móttöku árið 2020 og býr að dýrmætri reynslu og þekkingu í málaflokki flóttafólks.

Í hjarta Hafnarfjarðar á undirritunardegi. Margrét Vala Marteinsdóttir formaður fjölskylduráðs, Valdimar Víðisson formaður bæjarráðs, Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Nichole Leigh Mosty forstöðukona Fjölmenningarseturs og Ægir Örn Sigurgeirsson deildarstjóri flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra:

„Það er gleðiefni að Hafnarfjarðarbær hafi undirritað nýjan samning um samræmda móttöku flóttafólks, enda er mikilvæg og kærkomin þekking til staðar í bæjarfélaginu varðandi móttöku flóttafólks. Ég óska Hafnfirðingum einlæglega til hamingju.“

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri:

„Reynslan við móttöku flóttafólks sýnir að þjónustuþörf og stuðningsþörf er mjög mikil fyrstu dagana og vikurnar meðan fólk er að fóta sig á ókunnum slóðum og ákveða hvar það vill festa rætur til framtíðar. Þetta hefur kallað á mikla og sérhæfða þjónustu fagfólks, eflingu innviða og sértæka þjónustu á ýmsum sviðum og því mikilvægt skref að fjármögnun þjónustunnar sé tryggð með þessum samningi.”

Þetta er sjötti samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks á skömmum tíma. Auk Hafnarfjarðarbæjar hafa Akureyri, Árborg, Hornafjörður, Reykjanesbær og Reykjavíkurborg undirritað samninga við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.

Ábendingagátt