Hafnfirsk fyrirtæki á HITTUMST í Hafnarhúsinu

Fréttir

Fjöldi hafnfirskra fyrirtækja kynntu starfsemi sína á ráðstefnuni HITTUMST í Hafnarhúsinu í gær. Bæjarstjórinn kíkti við ásamt stjórum nágrannasveitarfélaganna.

Fjöldi hittist í Hafnarhúsinu

Hafnfirsk fyrirtæki voru meðal þeirra fjölmargra sem sýndu sitt á HITTUMST-ráðstefnunni í Hafnarhúsinu í gær. Ráðstefnan var haldin af Visit Reykjavík og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri fór um svæðið ásamt öðrum borgar- og bæjarstjórum og kynnti sér möguleikana.

Fjölmennt var á svæðinu og ólík fyrirtæki, sem þó öll snerta ferðaþjónustuna með einum eða öðrum hætti, sýndu og kynntu starfsemi sína.

Fjörukráin og Hótel Víking, Ölvisholt Brewery, Hafnarborg og Byggðasafnið frá Hafnarfjarðarbæ, Íshestar, já og Icelandair voru meðal hafnfirsku fyrirtækjanna sem tóku þátt í ár.

Hátt í 70 aðilar með 120 vörumerki voru á HITTUMST og kynntu gestum og gangandi starfsemi sína.

Hafnarfjörður er vinsæll áfangastaður meðal Íslendinga og aðsókn erlendra ferðamanna hefur einnig verið að aukast jafnt og þétt. Við erum hér fyrir þig.

Og ef þú ert að hugsa: Hvað get ég gert um helgina? Margir áhugaverðir staðir eru í göngufæri frá miðbænum, til dæmis Hellisgerði, Víðistaðatún, Lækurinn og Hamarinn.

Já, hér er nóg um að vera um helgina á frábærum veitingastöðum og kaffihúsum. Svo má líka skella sér á heiðurstóneika Bryndísar Ásmunds sem syngur lög Tinu Turner í Bæjarbíói í kvöld. En aftur að sýningunni í Hafnarhúsinu.

Myndir segja meira en mörg orð. Njótum!

Ábendingagátt