Haukar unnu tvo meistaratitla á USA CUP

Fréttir

Þriðji flokkur kvenna hjá Haukum náði frábærum árangri á USA CUP, einu stærsta og virtasta alþjóðlega unglingamóti heims í knattspyrnu, sem fram fór dagana 14.–18. júlí sl. Bæði lið félagsins unnu sinn aldursflokk og komu heim sem USA CUP meistarar.

Eftirtektarverður árangur við krefjandi aðstæður

Þriðji flokkur kvenna hjá Haukum náði frábærum árangri á USA CUP, einu stærsta og virtasta alþjóðlega unglingamóti heims í knattspyrnu, sem fram fór dagana 14.–18. júlí sl. Bæði lið félagsins unnu sinn aldursflokk og komu heim sem USA CUP meistarar.

  • U16 ára lið Hauka tryggði sér titilinn eftir æsispennandi úrslitaleik sem réðst í vítaspyrnukeppni. Þar sýndu leikmenn mikla yfirvegun, sterkan karakter og einstakan baráttuvilja þegar mest á reyndi.
  • U15 ára lið Hauka fagnaði einnig sigri í sínum aldursflokki. Úrslitaleikurinn var jafn og spennandi allt til loka, en sigurmark á lokamínútum innsiglaði glæsilegan sigur liðsins.

Árangurinn er sérstaklega eftirtektarverður í ljósi þess að leikið var við krefjandi aðstæður, meðal annars í allt að 35 stiga hita. Þrátt fyrir það héldu stúlkurnar einbeitingu, studdu hver aðra og sýndu mikla seiglu frá fyrsta leik til þess síðasta.

Þrautseigja, hugrekki, samheldni og gleði

Frammistaðan endurspeglar bæði knattspyrnulega getu leikmannanna og þau gildi sem einkenna öflugt íþróttastarf. Þrautseigja, hugrekki, samheldni og gleði voru áberandi hjá liðunum, innan vallar sem utan. Ferðin gaf leikmönnum dýrmæta reynslu, tækifæri til að mæta sterkum liðum frá ólíkum löndum og skapa minningar sem munu fylgja þeim lengi.

Hafnarfjarðarbær óskar leikmönnum, þjálfurum, fararstjórn, foreldrum og Knattspyrnudeild Hauka innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Ábendingagátt