Hvað finnst þér ?

Fréttir

Starfshópur  um endurskoðun frístundaheimila, frístundastyrkja og fyrirkomulags niðurgreiðslna og gjalda hefur ásamt starfsmönnum tómstundaskrifstofu unnið að samþykkt um starfsemi frístundaheimila.

Starfshópur  um endurskoðun frístundaheimila, frístundastyrkja og fyrirkomulags niðurgreiðslna og gjalda hefur ásamt starfsmönnum tómstundaskrifstofu unnið að samþykkt um starfsemi frístundaheimila. Sú samþykkt tengist  fjölmörgum aðilum í Hafnarfirði og því er það mikilvægt að fá umsögn frá sem flestum aðilum.

Í dag er engin slík samþykkt til. Frítími barna og fullorðinna er dýrmætur og í vaxandi mæli er það krafa foreldra að vinnutími barna verði samfelldari og ennfremur að gæði  frístundastarfs á vegum sveitarfélagsins taki mið af þörfum fjölskyldunnar fyrir samveru að vinnudegi loknum.

Frístundaheimili er ekki lögboðin þjónusta sveitarfélagsins en hefur fest sig í sessi sem mikilvægur liður í uppeldi og reynslunámi barna. Nú verður unnið að því að auka við framboð á áhugaverðum verkefnum fyrir nemendur í frístundaheimilum úr 3. og 4. bekk en afar fá börn úr þessum aldurshópi hefur tekið þátt í starfinu. Einnig verður sérstök áhersla lögð á að styðja við læsisátak í Hafnarfirði. Frístundaheimili munu taka þátt í því og sköpuð verður aðstaða fyrir nemendur til að lesa og stunda heimanám.

Bæjarbúum gefst nú  tækifæri á að skoða drögin og koma með athugasemdir.

Umsögnum skal skilað ekki seinna enn 13. apríl á netfangið geir@hafnarfjordur.is en einnig má senda frekari fyrirspurnir um verkefnið ef frekari upplýsinga er þörf.

Ábendingagátt