HEIMA hátíðin litar hjarta Hafnarfjarðar í kvöld
„Það á allt heima á Heima,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður og skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar HEIMA, sem haldin er í 11. sinn hér í í miðbæ Hafnarfjarðar í kvöld, miðvikudaginn 22. apríl – síðasta vetrardag.
HEIMA-hátíðin beint í hjarta Hafnfirðinga
„Það á allt heima á Heima,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður og annar skipuleggjandi skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar HEIMA, sem haldin er í 11. sinn hér í í miðbæ Hafnarfjarðar í kvöld, miðvikudaginn 22. apríl – síðasta vetrardag. Hinn er Henný María Frímannsdóttir sem er búsett í Hafnarfirði. Já, þessi gullfallega tónlistarhátíð markar lok vetrar og upphaf sumars í bænum.
„Uppselt og frábært, segir Óli Palli og lýsir því hvernig uppselt hefur verið síðustu tvö til þrjú síðustu ár, en aldrei hefur selst eins hratt upp og í ár. „Það er nýtt fyrir okkur að selja upp á þremur dögum fyrir mánuði síðan. Það þýðir að hátíðin hefur stimplað sig rækilega inn.“
Óli Palli horfir aftur til upphafsins. Hann hafi ásamt Kristni Sæmundssyni, sem var með plötubúðina Hljómalind á Laugaveginum og ól upp krúttkynslóðina – og fleirum, startað hátíðinni fyrir þessum rúma áratug eftir samtal við færeyska tónlistarmanninn Jón Tyril í tónlistarhúsinu Hörpu.
„Við hittumst á Iceland Airwaves 2013 og hann sagði okkur frá nýju festivali í Færeyjum.“ Þessi tónlistarmaður hafi verið í sveit með Eivöru Pálsdóttur söngkonu, en systir hennar Elinborg kemur einmitt fram á Heima í kvöld.
„Jón lýsti því hvernig hann vildi tónlistarhátíð án alls vesens. Ekkert vesen og klósett og girðingar heldur bara tónlist og fólk.“ Hann hafi sagt þeim frá sinni heimahátíð og þeir Kiddi hugsað; Vá, og gripið hugmyndina.
„Svo fórum við af stað. Fengum góða tónlistarmenn. Þarna voru Fjallabræður, Bjartmar, Ylja, Vök, Bjössi Thor og fleiri á fyrstu hátíðinni en fólk var ekki að kaupa þetta. Það var ekki að kaupa að fara heim til fólks sem það þekkti ekki og hlusta þar á tónlist,“ segir hann.
„Þetta tók alveg á og tók nokkur ár þar til fólk skyldi og var til í konseptið. Núna er fólk löngu búið að fatta þetta allt saman og sjá snilldina sem við sáum í upphafi.“ Óli Palli segir sama fólkið koma aftur og aftur, fólk á öllum aldri en stærsti hópurinn er fólk á aldrinum 45-55 ára, og nýir bætist við.
Já, það verður gaman í ár. Hátíðin er einstakur menningarviðburður, þar sem nánd flytjenda og gesta er í fyrirrúmi. Hafnfirðingar opna heimili sín og breyta stofum í tónleikastaði þar sem listamenn koma fram í litlum, persónulegum rýmum víðs vegar um miðbæinn.
Fjórtán listamenn taka þátt í hátíðinni í ár. Þeir spila þeir víðs vegar um bæinn. Auk heimahúsanna verður tónlist í Fríkirkjunni og í Bæjarbíói. Einnig á Fjörukránni og í ÆGI 220 í fyrsta sinn. Meðal þeirra sem koma fram eru Mugison, Pétur Ben, Elinborg og Oyama.
Afhending armbanda fer fram á Ægi frá kl. 14. Fyrstu HEIMA-tónleikarnir hefjast kl. 19.30 í Fríkirkjunni að lokinni formlegri setningu og þeim síðustu lýkur um kl. 23.00.
„Við erum allt árið að hugsa hvað við ætlum að bjóða upp á. Þetta er allt saman sérvalið. Við hugsum þetta þannig að þetta er fjölbreytt músík og það á allt heima á heima. Popp, rokk, folk, djass, og stundum klassík,“ segir Óli Palli.
En með hverju mælir hann? „Nú, Elínborgu Pálsdóttur í Mjósundi 8 og svo Fjörukránni. Já, Fjörukráin er nýr samstarfsaðili og þar verður gaman að vera: Sváfnir, Elínborg, Páll Óskar og Benni Hemm Hemm,“ segir hann.
„Svo höfum við gaman að því að bjóða upp á það sem fólk þekkir ekki vel en við vitum að er frábært, eins og t.d. Úkulellur. Það er allt gott á Heima, svo hvert sem þú ferð verður gaman.“
Já, njótum saman og fögnum fallegri skemmtun.