Heimgreiðslur, aukin niðurgreiðsla og stofnstyrkur

Fréttir

Nýverið samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar þá breytingu að bjóða upp á heimgreiðslur til foreldra barna frá 12 mánaða aldri, stofnstyrk til dagforeldra og hækkun á niðurgreiðslu til dagforeldra sem endurspeglast í nýjum heimgreiðslum. Þessar breytingar tóku gildi frá og með 1. janúar 2023. Auknir valmöguleikar þegar kemur að dagvistun barna skiptir máli.

Aukið val og fleiri leiðir sem brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar

Nýverið samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar þá breytingu að bjóða upp á heimgreiðslur til foreldra barna frá 12 mánaða aldri, stofnstyrk til dagforeldra og hækkun á niðurgreiðslu til dagforeldra sem endurspeglast í nýjum heimgreiðslum. Þessar breytingar tóku gildi frá og með 1. janúar 2023 og hafa það að markmiði að skapa ný tækifæri og aukna valmöguleika fyrir foreldra, gefa þeim tækifæri til að vera lengur heima og samhliða fjölga í mikilvægum hópi dagforeldra. Auknir valmöguleikar þegar kemur að dagvistun barna skiptir máli.

Heimgreiðslur til foreldra ungra barna

Frá og með 1. janúar 2023 geta foreldrar barna í Hafnarfirði sem náð hafa 12 mánaða aldri sótt um heimgreiðslur sem nema sömu upphæð og almenn niðurgreiðsla með börnum hjá dagforeldri. Með þessu er komið til móts við óskir foreldra um fleiri leiðir til að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til barn hefur skólagöngu í leikskóla. Samhliða þarf að halda áfram að finna fleiri leiðir og lausnir þannig að fjölbreytt og raunverulegt val fyrir nýbakaða foreldra sé til staðar s.s. lenging á fæðingarorlofi og enn frekari efling og aukning í sveigjanleika leikskóladvalar og dagforeldrakerfis. Í dag eru alls 26 dagforeldrar starfandi í Hafnarfirði og margir hverjir sem hafa helgað sig starfinu og geta státað af löngum starfsaldri, mikilli starfsreynslu og tengingum sem fylgja ævina á enda.

Sótt er um heimgreiðslur á Mínum síðum Hafnarfjarðarbæjar

Hafnarfjarðarbær vill fjölga í hópi dagforeldra

Dagforeldrar eru mikilvægur burðarstólpi í dagvistunarflórunni og vill Hafnarfjarðarbær með aðgerðum sínum meðal annars fjölga í þeirra hópi. Eftirspurn eftir þjónustu dagforeldra er mikil og nokkuð ljóst að ákveðinn hópur barna unir sér vel og stundum betur í smærri hópum og í heimilislegum aðstæðum. Dagforeldrar sem starfað hafa hjá bæjarfélaginu í 12 mánuði og hafa fullgilt starfsleyfi geta frá og með 1. janúar 2023 sótt um stofnstyrk að upphæð kr. 300.000.- kr. Samhliða hækkaði greiðsla til handa dagforeldrum vegna dvalar barna úr 8.433.- kr. á dvalarstund kr. í 12.800.- kr á dvalarstund. Tekjulægri foreldrar/forsjáraðilar geta sótt um viðbótarniðurgreiðslu á gildandi gjaldskrá. Systkinaafsláttur fæst svo þegar systkini eru samtímis hjá dagforeldri, í leikskóla eða í frístund og fær annað barn 75% afslátt og þriðja 100%. Dagforeldrar í Hafnarfirði eru sjálfstætt starfandi en fá starfsleyfi frá sínu sveitarfélagi samkvæmt ákveðnum skilyrðum. Daggæslufulltrúi Hafnarfjarðarbæjar hefur umsjón og eftirlit með starfsemi dagforeldra auk þess að veita þeim faglega ráðgjöf frá degi til dags.

Mynd: Olga Björt Þórðardóttir – Hafnfirðingur (júní 2019)

Ábendingagátt