Helliskaffi hreiðrar um sig í Hellisgerði
„Við hlökkum til að opna Helliskaffi í hinu sögulega húsi Oddrúnarbæ í hjarta Hellisgerðis sumarið 2026,“ segir Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður sem ásamt eiginkonu sinni Theódóru Ingibergsdóttur ræðst í kaffihúsarekstur í Hellisgerði.
Helliskaffi opnar í sumar
Hafnarfjarðarbær og Helliskaffi hafa gert með sér samning um afnot af húseigninni Reykjavíkurvegur 15 b, nánar tiltekið Oddrúnarbæ í Hellisgerði. Helliskaffi fær Oddrúnarbæ, tvo gróðurhús á lóðinni og svæði fyrir framan svið og hús til afnota næstu fjögur árin.
Markmiðið er að skapa lifandi samverustað fyrir gesti á öllum aldri, með sérstakri áherslu á barnvæna upplifun, litla viðburði, tónlist og samkomur yfir árið. Stefnt er að því að opna Helliskaffi í byrjun júní.
Draumur að verða að veruleika
Að Helliskaffi standa Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður og eiginkona hans Theódóra Ingibergsdóttir. Það hefur lengi verið draumur þeirra beggja að búa til hlýlegan samverustað fyrir alla aldurshópa í Hellisgerði.
Knútur ólst sjálfur upp steinsnar frá lystigarðinum og er þegar kominn með góða reynslu af mannlífinu í garðinum og góða tilfinningu fyrir tækifærunum. Hann stóð vaktina í Hellisgerði síðustu jól og tók á móti þúsundum gesta með gómsætum veitingum og hlýlegu umhverfi.
„Við hlökkum til að opna Helliskaffi í hinu sögulega húsi Oddrúnarbæ í hjarta Hellisgerðis sumarið 2026. Hugmyndin er að skapa notalegt og fjölskylduvænt kaffihús með íslenskum og dönskum áhrifum, þar sem lögð verður áhersla á góðar kaffiveitingar, vandað hráefni og hlýlegt andrúmsloft,“ segir Knútur.
„Við viljum ekki aðeins nýta kaffihúsið sjálft heldur einnig blása meira lífi í Hellisgerði í heild sinni og skapa upplifun sem fellur náttúrulega að garðinum, sögu hans og þeirri dulúð sem svæðið býr yfir.“

Theódóra Ingibergsdóttir og Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður reka Helliskaffi.
Skrúðgarður og opið útivistarsvæði
Rík áhersla er lögð á að starfsemin falli að stefnu bæjarins um að auka aðdráttarafl fyrir gesti og gangandi í bænum og að tekið sé mið af því að Hellisgerði er lystigarður og opið útivistarsvæði. Á sama tíma er Hellisgerði hverfisverndarsvæði og gilda þar ákvæði skipulagsreglugerðar um vernd.
„Áhuginn á verkefninu og ástin á garðinum er áþreifanleg,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri. „Ég veit að þau hjón munu vanda til verka og búa til hlýlegan og góðan samverustað fyrir okkur öll hér í Hellisgerði í sátt og samlyndi við umhverfið og allt fólkið sem hér býr – líka álfana.“
Umsjón Hellisgerðis heldur áfram að vera á hendi garðyrkjustjóra Hafnarfjarðarbæjar. Oddrúnarbær er 20,2 fermetrar að stærð, hús byggt árið 1905 og skiptist í forstofu, fremra herbergi, tvö salerni, innra herbergi og kjallara.
Myndatexti: Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar við undirritun samningsins um Helliskaffi í Hellisgerði.