Hreinsum Hafnarfjörð – Vorhreinsunin okkar
Dagana 14. – 17. maí 2026 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ. Þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám innan allra hverfa við hvern og einn grunnskóla.
Vorhreinsun – gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla
Dagana 14. – 17. maí 2026 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ. Þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám innan allra hverfa við hvern og einn grunnskóla.
Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudagsins 14. maí, Uppstigningardag, til kl. 17 sunnudaginn 17. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu.
Vakin er sérstök athygli á því að Sorpa tekur á móti garðúrgangi endurgjaldslaust. Athugið – gámarnir eru aðeins fyrir garðaúrgang.
Tökum virkan þátt – nýtum þjónustuna
Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum beint í hann. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar.
Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð.
Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum!
Hvar eru gámarnir?
- Áslandsskóli
- Engidalsskóli
- Hraunvallaskóli
- Hvaleyrarskóli
- Lækjarskóli
- Setbergsskóli
- Skarðshlíðarskóli
- Víðistaðaskóli
- Öldutúnsskóli