Húsfyllir í Hafnarborg á þingi um fjölmenningu  

Fréttir

Rúmlega fimmtíu áhugasamir einstaklingar sóttu fjölmenningaþing sem haldið var í Hafnarborg í vikunni. Þar komu saman áhugasamir íbúar, fulltrúar félagasamtaka og starfsfólk bæjarins til samtals um fjölbreytileika, þátttöku og hvernig efla megi gott samfélag fyrir alla. Áhersla var lögð á samtal um lausnir, samvinnu og þjónustu sem mætir þörfum allra íbúa. 

Áskoranir og fjölmörg tækifæri í fjölbreyttu samfélagi

Rúmlega fimmtíu áhugasamir einstaklingar sóttu fjölmenningaþing sem haldið var í Hafnarborg í vikunni. Þar komu saman áhugasamir íbúar, fulltrúar félagasamtaka og starfsfólk bæjarins til samtals um fjölbreytileika, þátttöku og hvernig efla megi gott samfélag fyrir alla. 

 

Opinn vettvangur til að ræða stöðu fjölmenningar  

Markmið þingsins er að skapa opinn vettvang til að ræða stöðu fjölmenningar í Hafnarfirði, áskoranir og þau fjölmörgu tækifæri sem felast í fjölbreyttu samfélagi. Áhersla var lögð á lausnir, samvinnu og þjónustu sem mætir þörfum allra íbúa.  Í upphafi þingsins voru kynningar um það fjölbreytta og öfluga starf sem þegar er unnið í Hafnarfirði á sviði fjölmenningar og inngildingar. Þar má nefna starf fjölmenningarráðs, samráðshóps fjölmenningar, brúarsmiða í skólum og frístundastarfi, stuðning við fjölskyldur af erlendum uppruna, fjöltyngt upplýsingaflæði og fjölbreytt verkefni á sviði menningar, menntunar og samfélagsþátttöku. Á dagskránni voru stutt erindi, samtalsborð og umræðuvinnustofur þar sem þátttakendur gátu deilt reynslu sinni, sjónarmiðum og hugmyndum að áframhaldandi uppbyggingu málaflokksins í fjölmenningarsamfélaginu Hafnarfirði.  

„Það er afar mikilvægt að skapa vettvang þar sem fólk af ólíkum uppruna kemur saman, hlustar hvert á annað og hefur raunveruleg áhrif á þróun samfélagsins. Inngilding verður til þegar allt samfélagið tekur þátt og vinnur saman,“ segir Hildur Ýr Jónsdóttir verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ. 

Þátttaka allra skiptir máli  

Í Hafnarfirði búa tæplega 33.600 íbúar og þar af eru um 6.150 með erlent ríkisfang eða rúm 18%. Þar eru Pólverjar langfjölmennastir. Fjölmenningarþingið endurspeglar skýran vilja Hafnarfjarðar til að byggja samfélag þar sem fjölbreytileiki er styrkur, þátttaka allra skiptir máli og raddir íbúa fá að heyrast. 

Nánari upplýsingar um verkefnastjóra fjölmenningar 

Ábendingagátt