Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hvernig liði þér í jóga, fljótandi á uppblásnu sup-bretti á Hvaleyrarvatni? Já, það er í boði. NATUR býður fjögurra manna ferðir vikulega í samvinnu við heilsubæinn Hafnarfjörð í allt sumar.
Hvernig liði þér í jóga,fljótandi á uppblásnu sup-bretti á Hvaleyrarvatni? Já, það er í boði. NATUR býður fjögurra manna ferðir vikulega í samvinnu við heilsubæinn Hafnarfjörð í allt sumar.
María Sif Guðmundsdóttir, jógakennari og eigandi Natur, segir slökunina einstaka um leið og hreyfingin sé kröftug. „Allar jógastöðurnar á brettinu eru krefjandi og vinnan verður dýpri á brettinu,“ segir hún.
María hefur síðustu ár verið á sup-brettum en byrjaði á kajak. „Ég kynntist brettunum fyrir tilviljun og féll alveg fyrir þeim. Það er auðvelt að ferðast með þau; hægt að fara hvert sem er. Frábær hreyfing en líka góð núvitund, vera úti á vatni eða sjó,“ segir hún og lýsir því hvernig hugmyndin hafi kviknað að gera jóga á brettunum
„Ég lærði jóga fyrir þremur árum og fór að skoða að setja þetta saman. Það kallaði eitthvað á mig að koma því í gang. Svo sá ég að fólk hafði gert þetta annars staðar í heiminum með góðum árangri, svo ég sló til.“
Hún segir nú lítið vatnsmagn í Hvaleyrarvatni. „En við róum sitjandi og úti á miðju vatninu æfum við okkur í að standa á brettinu. Flestir gera það örugglega eftir tímann. Í jógaflæðinu förum við í gegnum allskonar stöðu. Hvert og eitt gerir sína stöðu eins og hentar best.“
Fólk elski upplifunina. „Já, ég hef fengið nokkra sem hafa komið aftur og aftur,“ segir hún. „Svo eru aðrir sem njóta þessarar upplifunar og prófa aðeins einu sinni. Fyrir utan hvað þetta er slakandi er þetta frábær æfing.“
María skoðar veðurspána og finnur tíma með hverjum hópi. „Ég reyni að hafa tímana á morgnanna til að ná rólegasta tímanum á vatninu.“ Eftir tímann má hver þátttakandi búast við að vera kominn með grunnkunnáttu á brettinu. „Ég lofa góðri slökun.“
Og þetta er einfalt. „Það þarf aðeins að mæta með sólarvörn og vatnsflösku.“
Já, nú er að njóta lífsins og núsins!
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 24. október og föstudaginn 25. október nk. Af því tilefni er meðal…
Bóka- og bíóhátíð barnanna 2024 hefst í dag en hún er menningarhátíð fyrir börn í Hafnarfirði. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri setti…
Hafnarfjörður er baðaður í bleikum ljósum og ljóma þessa dagana. Tilgangurinn er afar bleikur og tileinkaður Krabbameinsfélaginu og baráttunni gegn…
Foreldrar leikskóladrengs sem styttu veru hans í leikskólanum um klukkustund á dag lækkuðu greiðsluna fyrir um tæpar 15.500 krónur á…
Hafnarfjarðarbær auglýsir Strandgötu 1, Austurgötu 4a og Austurgötu 6 til sölu og óskar eftir tilboðum. Eignirnar verða allar seldar saman…
Árlega er haldin sameiginleg nemendafræðsla fyrir öll nemendafélög í grunnskólum Hafnarfjarðar. Fræðslan var haldin á Ásvöllum í vikunni og komu…
Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt þann 10. október sl. sína árlegu viðurkenningarathöfn. Þar var Hafnarfjarðarbær í hópi…
Hafnarfjarðarbær býður upp á fjölbreytt frístundastarf fyrir börn og ungmenni með fötlun sem hefur það að markmiði að veita hverjum…
Vel var mætt á fræðslukvöld fyrir foreldra og forsjáraðila barna og ungmenna á leik- og grunnskólaaldri í Bæjarbíó í gærkvöldi.…
Rúmlega þrjátíu ár eru liðin síðan fyrstu trén voru gróðursett í Cuxhavenlundi, þá í tilefni af 40 ára stjórnmálasambandi Íslands…