Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Um helgina hefjast jólin formlega í Hafnarfirði með opnun Jólaþorps og tendrun ljósa á jólatrjám á Thorsplani og Flensborgarhöfn. Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opið alla laugardaga og sunnudaga á aðventunni frá kl. 12-17. Opnunarhátíð stendur yfir frá kl. 18 – 20 á föstudagskvöld með jólaskemmtun, flugeldasýningu og jólasveinum
Um helgina hefjast jólin formlega í Hafnarfirði með opnun Jólaþorps og tendrun ljósa á jólatrjám á Thorsplani og Flensborgarhöfn. Á Thorsplani hafa nú risið sautján fagurlega skreytt jólahús þar sem syngjandi glaðir sölumenn bjóða fjölbreytta gjafavöru, hönnun og íslenskt handverk. Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opið alla laugardaga og sunnudaga á aðventunni frá kl. 12-17. Opnunarhátíð stendur yfir frá kl. 18 – 20 á föstudagskvöld með jólaskemmtun, flugeldasýningu og jólasveinum.
Um helgina hefst jólaævintýrið í Jólaþorpinu á Thorsplani. Jólaþorpið er opið allar helgar á aðventunni og opnar nú í ár föstudaginn 25. nóvember kl. 18:00. Skipulögð dagskrá verður á sviði til klukkan 20 þennan föstudag þar sem Felix Bergson heldur uppi jólafjörinu. Hann og Sigrún Þorleifsdóttir – betur þekkt sem Dúna í Blómabúðinni Burkna – munu saman tendra ljósin á jólatrénu á Thorsplani og telja niður með gestum á fyrsta degi Jólaþorpsins. Jólasveinar og Grýla verða á svæðinu, söngur og skemmtun á sviði og flugeldasýning í boði Fjarðar sem Björgunarsveit Hafnarfjarðar sér um. Í litlu fagurlega skreyttu jólahúsunum verður í boði ýmiss gjafavara, handverk og íslensk hönnun. Í ár geta líka fjölskyldur og vinahópar á ferð sinni um bæinn látið smella af sér mynd í Firði verslunarmiðstöð til minningar um notalega stund í Hafnarfirði á aðventunni.
Klukkan 15 fyrsta laugardag aðventunnar verða ljós á Cuxhaventrénu á Flensborgarhöfn tendruð og býður Hafnarfjarðarhöfn til skemmtunar á hafnarsvæðinu sem einkennist af léttri tónlist, leikskólakór og jólasveinum. Að lokinni dagskrá er gestum boðið að þiggja heitt súkkulaði og kleinur á Kænunni. Vinabæjarsamskipti Hafnarfjarðarbæjar og Cuxhaven hafa varað allt frá því í september 1988 eða í nær þrjá áratugi. Þau hafa verið með afar fjölbreyttu sniði þar sem vinabæjarfélög íbúa hafa verið drifkraftur í samstarfi og samvinnu á sviði menningar, íþrótta, atvinnulífs og stjórnsýslu. Hafnarfjarðarbær er eina sveitarfélagið á Íslandi sem heldur uppi vinabæjarsamskiptum við Þýskaland og einn þáttur í reglulegu samstarfi er að Cuxhaven færir bænum veglegt jólatré að gjöf fyrir aðventuna ár hvert og hefur því tré verið komið upp á hafnarsvæðinu við minnismerkið um fyrstu lúthersku kirkjuna á Íslandi sem þýskir kaupmenn reistu hér í Hafnarfirði fyrir miðbik 16 aldar. Þetta tré verður reist á höfninni nú um helgina.
Thorsplanið verður fullt af lífi og fjöri í kringum jólin og litlu jólahúsin orðin landsþekktur söluvettvangur lista, handverks og hönnunar. Eftir 14 ár hefur Jólaþorpið náð að heilla landsmenn alla og í auknu mæli ferðamennina sem kjósa að sækja landið heim. Hafnfirðingar sjálfir eru í auknu mæli líka farnir að nýta tækifærið og vettvanginn sem þarna skapast til heimboða á aðventunni. Þannig hópast heilu stórfjölskyldurnar og vinahóparnir í miðbæ Hafnarfjarðar, kíkja í búðir, á listasýningu, í litlu jólahúsin eða söfn bæjarins gagngert til að hafa það huggulegt á aðventunni.
Grunnurinn Hamranesskóla er risinn. Hverfið er að taka á sig fulla mynd eins og myndir ljósmyndarans Ragnars Th. Sigurðssonar fyrir…
Nú má panta samtal við Valdimar Víðisson bæjarstjóra á netinu. Hnappur er kominn á forsíðu vefjar bæjarins.
Lokun gatna á opnunartíma Jólaþorpsins. Í gildi frá 14.nóvember kl.17:00 til 23.desember kl.20:00.
Vegna flugeldasýningar verður Fjarðargata lokuð föstudaginn 21.nóvember milli kl.19:15-19:30.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri tók á móti hafnfirska Neyðarkallinum í dag. Hafnarfjarðarbær styrkir Björgunarsveit Hafnarfjarðar með kaupum á Neyðarkallinum.
Tillaga að fjárhagsáætlun 2026 var lögð fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar til fyrri umræðu í dag, miðvikudaginn 5. nóvember 2025.
Já, það verður eitthvað gott í pokahorninu og búast má við að allir sem þangað mæti fái eitthvað fallegt á…
Hafnfirskir sundgarpar hafa synt lengst í landsátakinu Syndum tvö ár í röð. Átakið var sett í 5. sinn í gær.
Spennan magnast. Jólaþorpið rís þessa dagana og opnar 14. nóvember. „Hvert einasta ár finnum við nýjar leiðir til að gera…
UPPFÆRT: Hrekkjavakan er á morgun! Veðrið gæti þó spillt fyrir gleðinni. Úrhelli í kortunum. Við hvetjum ykkur til að fylgjast…