Jólaskreytingakeppni íbúa og fyrirtækja 2023

Fréttir

Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að setja upp stóru jólagleraugun í desember og senda ábendingu um þau hús, þær götur og þau fyrirtæki sem þykja bera af í jólaskreytingunum í Hafnarfirði þetta árið.

Setjum upp risastóru jólagleraugun og bendum á þá sem bera af

Íbúar og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði hafa heldur betur tekið hvatningunni um að skreyta hús sín og fyrirtæki og lýsa upp skammdegið vel og nú styttist óðum til jóla. Í jólabænum Hafnarfirði verða í desember veitt verðlaun fyrir best skreyttu íbúðarhúsin, best skreyttu götuna og best skreytta fyrirtækið í Hafnarfirði. Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til þess að setja upp stóru jólagleraugun í desember og senda ábendingu um það sem þeim þykir bera af í jólaskreytingunum í Hafnarfirði þetta árið. Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar mun sjá um val á best skreytta húsinu.

Sendu inn þína ábendingu

Komdu ábendingu þinni á framfæri með því að fylla út formið hér fyrir neðan til og með 14. desember. Þar með ábending um hús, götu eða fyrirtæki komin í jólapott bæjarins um best skreytta húsið, best skreyttu götuna eða best skreytta fyrirtækið.

Best skreytta húsið eða gatan

Ábendingagátt