Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Með auknum systkinaafslætti og niðurgreiðslu frístundastyrkja er stigið mikilvægt skref í að minnka kostnað barnafjölskyldna í bæjarfélaginu og er það í takt við fjölskylduvænar áherslur.
Fræðsluráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum rétt í þessu tillögur starfshóps um breytingar á gjaldskrá og niðurgreiðslum á fræðslu- og frístundasviði. Með auknum systkinaafslætti og niðurgreiðslu frístundastyrkja er stigið mikilvægt skref í að minnka kostnað barnafjölskyldna í bæjarfélaginu og er það í takti við fjölskylduvænar áherslur. Hækkun á systkinaafslætti tekur gildi 1. september og breyting á frístundastyrkjum frá og með 1. nóvember.
Með tillögum starfshópsins eru stigin skref í þá átt að draga verulega úr útgjöldum barnafjölskyldna. Ákvörðun hefur verið tekin um að auka systkinaafslátt úr 30% í 50% fyrir annað barn og úr 50% í 75% fyrir þriðja barn. Afsláttur gildir milli þjónustustiga í samræmi við núverandi reglur. Við yfirferð á heildarútgjöldum barnafjölskyldna kom ljóslega fram mikilvægi þess að mæta barnmörgum fjölskyldum með hækkun á systkinaafslætti til að tryggja að öll börn hafi sem jafnastan aðgang að skóla og frístundastarfi. Einnig hefur verið ákveðið að hækka frístundastyrki í kr. 3.000 á mánuði fyrir alla aldurshópa, úr 1.700.- kr á mánuði fyrir 6-12 ára og 2.550.- kr. á mánuði fyrir 13 – 16 ára. Aldursmörk verða jafnframt hækkuð um tvö ár eða frá 6 ára til 18 ára aldurs í stað 16 ára. Markmið með hækkun frístundastyrks er að tryggja jafnan aðgang allra barna og auka þátttöku þeirra í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Með því að hækka aldursmörk í 18 ár er markvisst unnið gegn brottfalli í þessum aldurshópi. Kostnaði sem til fellur vegna breytinganna á yfirstandandi fjárhagsári verður mætt með viðauka við fjárhagsáætlun sem lagður verður fram síðar í mánuðinum. Fræðsluráð fagnar samróma niðurstöðu starfshópsins og að þessar breytingar á gjaldskrám séu orðnar að veruleika.
Mikilvægt er að haldið verði áfram á þessari braut og útgjöld lækkuð enn frekar með endurskoðun á dvalargjöldum leikskólabarna, tekjuviðmiðum, hækkun á systkinaafslætti og frístundastyrkjum. Við gerð næstu fjárhagsáætlunar er ætlunin að tryggja að málefni barnafjölskyldna hafi forgang og áfram verði unnið markvisst að frekari lækkun þjónustugjalda.
Umfangsmikil vinna hefur átt sér stað í Hafnarfirði sem tengist farsæld barna og samþættingu þjónustu.
Bæjarstjóri skoðaði nýja fjölbýlishúsið að Suðurgötu 44 og segir það fallegt dæmi um þéttingu sem eykur gæði hverfisins og virðir…
Útnefning bæjarlistamans Hafnarfjarðar fyrir árið 2026. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til…
Aðsókn á viðburði á Bókasafninu jókst um 81% milli ára. Hátíðin Heimar og himingeimar sprakk út og sóttu 10 þúsund hana.…
Hafnarfjarðarbær hefur fengið 8.185.000 króna styrk frá barna- og menntamálaráðuneytinu til að efla íslenskukunnáttu, sjálfstraust og þátttöku starfsfólks hafnfirskra leikskóla í samfélaginu.
Ráðherra, bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Vigdísarholts skáluðu í kakói með rjóma við undirritun á samkomulagi um byggingu og rekstur nýs 108…
Hafnarfjarðarbær hefur samþykkt að veita Brynju leigufélagi stofnframlag til kaupa á 16 íbúðum til úthlutunar fyrir öryrkja. Íbúar í Hafnarfirði…
Gestafjöldi í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, jókst um 14% milli ára. Fjölbreytt ár framundan í breyttum miðbæ Hafnarfjarðarbæjar.
Viltu spjalla við verkefnastjóra fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ? Koma hugmyndum þínum á framfæri, fá ráð eða ræða málin? Opnir viðtalstímar í…
Tvö námskeið eru í boði í Nýsköpunarsetrinu nú í janúar. Annað Listasmiðja fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára. Hitt Skissubókanámskeið…