Komdu á fjölmenningarþing á fimmtudag 

Fréttir

Komdu á fjölmenningarþing Hafnarfjarðar 2026 sem haldið verður í Hafnarborg 16. apríl kl. 18:00–20:30. Þingið er vettvangur íbúa, félagasamtaka og starfsfólks þar sem rætt er um fjölbreytileika, samfélagsþátttöku og hvernig efla megi gott samfélag fyrir alla. 

Fjölmenningarþing í Hafnarborg

Um fjörutíu eru þegar skráðir á Fjölmenningarþing Hafnarfjarðar 2026 sem haldið verður í Hafnarborg 16. apríl kl. 18:00–20:30. Þingið er vettvangur íbúa, félagasamtaka og starfsfólks þar sem rætt er um fjölbreytileika, samfélagsþátttöku og hvernig efla megi gott samfélag fyrir alla. 

„Við ætlum að ræða hvað við vinnum að til að efla samfélagið í fjölmenningarlegu samhengi. Svo verða gestaerindi frá GETU samtökunum og Rauða krossinum. Þau fara yfir hjálparstarfið sitt hér í Hafnarfirði,“ segir Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ. 

„Svona þing er mikilvægt til að eiga samtalið um hvernig við getum eflt starfið okkar og gert betra til að samfélagið okkar vaxi og mæti fjölmenningunni á áreynslulausan máta.“ 

En er mikil fjölmenning í Hafnarfirði? „Já, hér búa 18,8% íbúa með erlent ríkisfang samkvæmt Þjóðskrá. Það er svipað hlutfall og almennt á landsvísu og okkur er umhugað um að samfélagið allt taki vel á móti nýjum íbúum,“ segir Hildur Ýr.  

„Á fjölmenningarþinginu ætlum við að vinna verkefni saman og finna þau sem við getum ráðist í. Þetta er samtal við bæjarbúa um fjölmenningu. Eftir erindin eru vinnustofur þar sem við ræðum snertifleti við fjölmenningu í Hafnarfirði. Þar viljum við heyra reynslusögur, hugmyndir og ólíkar sýnir svo við getum eflt það sem vel er gert og fundið leiðir til að laga það sem betur má fara.“

Hildur Ýr Jónsdóttir stýrir för á fyrsta Fjölmenningarþingi Hafnarfjarðarbæjar.Markmiðið er að skapa opið samtal um stöðu fjölmenningar í Hafnarfirði, áskoranir fólks af ólíkum uppruna og þau tækifæri sem felast í fjölbreyttu samfélagi. Lögð verður áhersla á lausnir, samstarf og þjónustu sem nær til allra. 

  • Á dagskrá eru stutt erindi, samtalsborð og umræðuvinnustofur þar sem þátttakendur geta deilt sjónarhornum sínum. Túlkar í spænsku, pólsku og arabísku verða á staðnum til að tryggja að sem flestir geti tekið fullan þátt.  

Þín skoðun skiptir máli. Boðið verður upp á veitingar og barnagæslu frá Plánetu á meðan þinginu stendur. 

Mikilvægt er að skrá sig á þingið. 

 

Ábendingagátt