Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Frá og með hausti 2015 lækkaði inntökualdur hafnfirskra barna í leikskóla úr 20 mánaða í 18 mánaða. Að auki var öllum börnum fæddum í mars 2014 úthlutað plássi frá og með 1. febrúar 2016.
Frá og með hausti 2015, nánar tiltekið í ágúst, lækkaði inntökualdur hafnfirskra barna í leikskóla þannig að öll börn fædd í janúar og febrúar 2014 fengu leikskólapláss. Öllum börnum fæddum í mars 2014 var síðan úthlutað plássi frá og með 1. febrúar 2016. Í fyrsta skipti nú í ár eru börn tekin inn tvisvar yfir árið.
Með fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar fyrir árið 2016 var ákveðið að færa inntökualdur barna á leikskóla niður um einn mánuð til viðbótar þannig að 1. ágúst n.k. fá öll börn fædd í janúar, febrúar og mars 2015 inni á leikskólum bæjarins. Þann 1. febrúar 2017 er svo gert ráð fyrir að taka inn börn fædd í apríl 2015. Hafnarfjarðarbær niðurgreiðir í dag daggæslugjöld barna hjá dagforeldrum og að auki geta foreldrar sótt um niðurgreiðslu að fæðingarorlofi loknu vegna gæslu hjá öðrum en dagforeldrum að uppfylltum settum skilyrðum. Þegar börn hafa náð 18 mánaða aldri hækka niðurgreiðslur til dagforeldra sem nemur 40% til að lækka hlut foreldra sem bíða eftir leikskólaplássi. Greiðslur falla niður um leið og barn hefur fengið boð um leikskólavist.
Dagforeldrar sem veita börnum daggæslu eru sjálfstætt starfandi. Fræðslu- og frístundaþjónusta Hafnarfjarðarbæjar annast leyfisveitingar, veitir dagforeldrum ráðgjöf og sér um eftirlit með starfseminni samkvæmt reglugerð félagsmálaráðuneytis frá 2005. Val á dagforeldri er á ábyrgð foreldra og dagforeldrum í sjálfsvald sett hvaða form og forgang þeir setja varðandi inntöku hjá sér. Hafnarfjarðarbær reynir að vera leiðbeinandi og ráðgefandi í þessum efnum en endanleg ákvörðun liggur hjá dagforeldrinu sjálfu. Stefnt er að auknu samstarfi við dagforeldra um skráningu barna á biðlista. Námskeið sem veita réttindi til að gerast dagforeldri eru að jafnaði haldin tvisvar ári í Námsflokkum Hafnarfjarðar – miðstöð símenntunar og styrkir bærinn þá sem ljúka þeim námskeiðum og taka til starfa í Hafnarfirði um námskeiðsgjöldin.
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…