„Læsispennandi“ samstarf nemenda og höfunda í Hafnarfirði

Fréttir

Lestrarverkefnið LÆK er í nýjasta útspil Hafnarfjarðarbæjar í þeirri mikilvægu vegferð að efla lestur og lesskilning nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar. Verkefnið er stórt í sniðum og kallar á samstarf og áhuga alls skólasamfélagsins og öflugan stuðning bæjaryfirvalda.

Á alþjóðlegum degi læsis er viðeigandi að kynna sumarbókina 2024 – LÆK  

Lestrarfærni er forsenda virkrar þátttöku í samfélaginu og hefur starfsfólk leik- og grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar óhrætt farið skapandi leiðir í þeirri mikilvægu vegferð að efla lestur og lesskilning nemenda. Lestrarverkefnið LÆK er í nýjasta útspilið og hefur Hafnarfjarðarbær fengið til liðs við sig tvo af fremstu barnabókahöfundum landsins. Verkefnið er stórt í sniðum og kallar á samstarf og áhuga alls skólasamfélagsins og öflugan stuðning bæjaryfirvalda.   

Afraksturinn er bók með 18 smásögum einstaka skólahverfa  

Barnabókahöfundarnir, Gunnar Helgason og Bergrún Íris Sævarsdóttir, munu á skólaárinu 2023-2024 skrifa alls 18 smásögur í samstarfi við kennara og nemendur á mið- og unglingastigi í níu grunnskólum Hafnarfjarðarbæjar. Bergrún Íris skrifar fyrir miðstig og Gunnar Helgason fyrir unglingastig. LÆK vegferðin er þegar hafin og hafa þau Gunnar og Bergrún farið í alla grunnskóla Hafnarfjarðar í vikunni og kynnt verkefnið fyrir nemendum.

Dregið verður úr potti hugmynda 18. september

Í framhaldi munu allir nemendur senda inn hugmynd að söguefni sem má vera eitt orð, nafn eða heilsteypt hugmynd auk þess að senda inn tillögur að nöfnum á sögupersónur. Eina skilyrðið er að sögusviðið tengist skóla nemanda eða skólahverfi. Nemendur munu að sjálfsögðu leggja sitt mat á skrifin, velja sína uppáhalds sögu á hvoru stigi auk þess að vinna verkefni úr sögunni sem fjallar um þeirra skólahverfi. Þau hafa svo möguleika á að vinna til verðlauna ef þeirra hugmynd ratar í sögurnar. Þann 18. september nk. munu höfundar draga hugmyndirnar úr potti hvers skóla og skólastigs. Hvor höfundur um sig ræður fjölda dreginna hugmynda og hættir þegar hann telur að nóg sé komið í heila sögu. Höfundarnir ljúka skrifum 1. febrúar 2024 og munu sögurnar verða gefnar út í fallegri bók á síðasta vetrardag 2024.

Bergrún Íris Sævarsdóttir hittir krakkana í Víðistaðaskóla

Gunnar Helgason kynnir LÆK í Hraunvallaskóla

Stórglæsileg bókarkápa hefur þegar verið hönnuð af Sigmundi Breiðfjörð Þorgeirssyni teiknara.

Bókakápa bókarinnar LÆK. Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson teiknaði.

Lestur er lífsins leikur

Um árabil hefur Hafnarfjarðarbær unnið markvisst eftir skýrri og skilvirkri læsisstefnu sem ber heitir Lestur er lífsins leikur. Um er að ræða stórt samfélagslegt verkefni þar sem leik- og grunnskólar, ásamt foreldrum, heilsugæslu, dagforeldrum og ýmsum stofnunum bæjarins, taka höndum saman um að efla málþroska og læsi barna. Yfirlýst markmið verkefnis er að nemendur geti lesið sér til gagns og ánægju við lok grunnskólagöngu og því lögð sérstök áhersla á skapandi og hvetjandi leiðir og að veita öllum nemendum kennslu við hæfi. Þetta stóra samstarfsverkefni samfélagsins í Hafnarfirði hefur meðal annars skilað sér í aukinni samfellu milli skólastiga og lagt línurnar um mikilvægi læsis sem grunnstoð alls náms.

Ábendingagátt