Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Staða skipulagsfulltrúa var auglýst laus til umsóknar í janúar 2023 með umsóknarfrest til og með 9. febrúar. Sex umsækjendur sóttu um starfið. Gengið hefur verið frá ráðningu Lilju Grétarsdóttur arkitekts í starfið. Þormóður mun sinna starfi skipulagsfulltrúa til 1. júní.
Staða skipulagsfulltrúa var auglýst laus til umsóknar í janúar 2023 með umsóknarfrest til og með 9. febrúar. Sex umsækjendur sóttu um starfið og dró einn umsækjandi umsóknina sína til baka. Gengið hefur verið frá ráðningu Lilju Grétarsdóttur arkitekts í starfið. Mun hún hefja störf að hluta til frá 1. apríl og taka við starfi skipulagsfulltrúa frá og með 1. júní þegar starfandi skipulagsfulltrúi lætur af störfum fyrir aldurs sakir.
Lilja lauk prófi byggingarlist frá Arkitektaskólanum í Árósum vorið 1988, hefur leyfisbréf iðnaðarráðherra til að nota starfsheitið húsameistari – arkitekt, löggildingu umhverfisráðherra til að leggja fram aðal- og séruppdrætti af húsum og öðrum mannvirkjum og leyfi til að sinna skipulagsgerð. Lilja býr yfir víðtækri og góðri reynslu af störfum sem arktitekt og unnið við gerð aðaluppdrátta, verkteikninga, deililausna og innréttinga, ásamt því að vinna sjálfstætt að verkefnum og hafa góða innsýn inn í störf hönnuða á almennum markaði. Á árunum 1993-2004 starfaði Lilja sem arkitekt hjá bæjarskipulagi Hafnarfjarðarbæjar og hefur frá árinu 2004 unnið sem arkitekt hjá skipulagsfulltrúanum í Reykjavík. Í störfum sínum hjá sveitarfélögunum hefur Lilja verkstýrt fjölmörgum stórum og smáum verkefnum ásamt því að vinna að áætlanagerð og mati á umsóknum og fyrirspurnum um þróun byggðar og bygginga.
Skipulagsfulltrúi stjórnar daglegri starfsemi skipulagsdeildar og sér til þess að fagleg vinnubrögð séu ráðandi í öllu starfi hennar. Starfið felur í sér þátttöku í stefnumótun og forystu við þróun og innleiðingu nýjunga og nýrra áherslna í deildinni og að hún sé í fararbroddi hvað varðar þjónustu við notendur og sé í samræmi við ferla og reglur sem eru í gildi.
Við óskum Lilju velfarnaðar í starfi skipulagsfulltrúa og þökkum Þormóði Sveinssyni fyrirfram kærlega fyrir hans framlag í þágu sveitarfélagsins.
Vignir Vatnar Stefánsson nældi í sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil eftir hreint magnaðan lokadag á Íslandsmótinu í skák að Ásvöllum í Hafnarfirði…
Vinnuskóli Hafnarfjarðar er hugsaður sem fyrsti vinnustaður ungmenna þar sem þau fá að upplifa það að vera á vinnumarkaði og…
Opnaður hefur verið nýr og metnaðarfullur tómstundavefur hjá Hafnarfjarðarbæ. Vefurinn hefur að geyma allar helstu upplýsingar um námskeið og afþreyingu…
Síðan 2021 hefur Hafnarfjarðarbær starfrækt Skapandi sumarstörf í annarri mynd en áður var. Hafnarfjörður mun iða af sköpun í sumar,…
Grunnskólaskákmót Hafnarfjarðar fyrir elstu nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar fór fram miðvikudaginn 10. maí síðastliðinn í Hvaleyrarskóla. Skákmótið var haldið á…
Fjölbreytt námskeið og sumartómstund standa börnum og ungmennum á aldrinum 6-13 ára til boða á vegum Hafnarfjarðarbæjar sumarið 2023. Mikil…
Dreifing á nýjum tvískiptum sorpílátum hófst á Holtinu í Hafnarfirði í gær. Guðrún Árný Karlsdóttir söngkona, kennari og íbúi á…
Dreifing á nýjum sorpílátum hófst í Hafnarfirði í morgun og ef allt gengur áætlunum samkvæmt mun dreifingu ljúka á Völlunum…
Komi til vinnustöðvunar verður skipulag skólastarfs í grunnskólum Hafnarfjarðarbæjar með eftirfarandi hætti.
347 ný krútt fæddust í Hafnarfirði árið 2022. Fyrstu fjóra mánuði árins 2023 hafa 102 krútt til viðbótar fæðst í…