Lionsklúbburinn Ásbjörn færði einhverfum börnum 85″ sjónvarp

Fréttir

„Við erum svo þakklát fyrir þennan glæsilega búnað frá ykkur,“ sagði Kristín Lind Albertsdóttir, kennari við einhverfudeildina í Hraunvallaskóla, þegar Lionsklúbburinn Ásbjörn kom færandi hendi í gær. Lionsmenn gáfu 85″ gagnvirkt sjónvarp, tramólín og sérsniðin leikföng.

Gjöf sem hjálpar í Hraunvallaskóla

Lionsklúbburinn Ásbjörn færði einhverfudeildinni í Hraunvallaskóla veglega gjöf síðdegis í gær. Deildin fékk 85 tommu gagnvirkt sjónvarp, tvö inni trampólín og leikmuni sem hjálpa þeim við skólastarfið.

Ellefu börn eru nú á deildinni sem hóf í haust sitt annað starfsár. Þau stunda nám í fyrsta, öðrum, þriðja og fimmta bekk. Kristín Lind Albertsdóttir, þroskaþjálfi og kennari við deildina, tók vel á móti Lionsmönnum og útskýrði starfið fyrir þeim.

Vandað til verka á deildinni

„Hópurinn okkar er náttúrlega einstaklega viðkvæmur og við þurfum að vanda okkur mjög vel við allt sem við gerum,“ sagði Kristín Lionsmönnum.

„Við þurfum að hafa allt sjónrænt og hvert einasta barn fær kennslu sem er sniðin að því sjálfu. Við réttum þeim ekki stafabók úr fyrsta bekk og ætlumst til þess að þau gangi inn í fyrsta bekk. Það virkar alls ekki þannig hjá okkur,“ lýsti hún starfinu fyrir Lions-mönnum

„Svo erum við svo heppin að fá þennan glæsilega búnað frá ykkur. Börnin sáu náttúrlega ekkert nema bíó þegar þau mættu. Þau héldu að við yrðum í bíó alla daga,“ sagði hún í léttum tóni. Hún snýr sér að Brynjólfi einum nemenda deildarinnar.

  • „Hvað varstu að læra á skjánum í dag?“ spyr hún Brynjólf sem situr með foreldrum sínum og fylgist með þegar Lionsmenn afhenda gjöfina.
  • „Um himingeiminn,“ svarar hann.

Kristín segir þeim að þau hafi horft bæði á myndbönd um himingeiminn og leyst verkefni á netinu. „Börnin geta notað pennann sem fylgir skjánum og merkt við rétta svarið.“ Hún útskýrir nánar hvernig þau nota risaskjáinn.

„Við höfum líka leyft þeim að gera verkefni, meðal annars að teikna kassa. Við getum fengið upp rúðustrikaðan skjá og þau æfa sig í að gera kassa og þríhyrninga inni í kössunum. Þannig þjálfum við fínhreyfingar.“

Trampólínin afar mikilvæg

Kristín er afar ánægð með trampólínin tvö. „Þeir sem þekkja einhverfu vita að oft er mikil hreyfiþörf. Við köllum það „stimming“. Börnin þurfa að hreyfa sig, hoppa eða gefa frá sér hljóð og þá er oft mjög gott að komast á trampólínið,“ segir hún.

„Ég hef til dæmis, þó það hafi ekki verið hér, kennt einstaklingi að lesa sem gat bara lesið á trampólíninu. Hann las bara á ferðinni og það virkaði. Svo það gerðum við,“ segir hún skemmtilega frá. „Við gerum í rauninni allt sem virkar, alveg sama hvernig það fer fram.“

Íris Svala Sigurðardóttir og Lúðvík Brynjarsson, foreldrar Brynjólfs nemanda á deildinni, voru viðstödd þegar Lionsmenn afhentu gjöfina. Þau eru afar ánægð með skólastarf sonarins í Hraunvallaskóla.

„Við erum ekki að berjast, eins og margir foreldrar, að koma barninu út á morgnanna,“ segir Lúðvík. „Nei, rétt,“ staðfestir Íris. „En  það er stundum erfitt að koma honum heim héðan.“ Þau brosa. Lúðvík heldur áfram.

„Mig langar bara að taka fram aftur að fólkið hérna er gull. Þetta eru bara gullmolar. Þetta er frábært starf og samskiptin eru frábær. Þau eru til fyrirmyndar.“

Annað starfsár deildarinnar

Einhverudeildin í Hraunvallaskóla er nú komið á sitt annað starfsár. „Við erum bara óendanlega þakklát fyrir nýju deildina og allt sem við höfum fengið,“ segir Kristín og að gjafir eins og þá frá Lion skipti miklu máli. „Allt sem við fáum hjálpar okkur alveg óstjórnlega mikið.“

Kveikjan að þessu góðverki Lionsklúbbsins Ásbjarnar voru tengsl Gissurar Guðmundssonar við eitt barnið. „Ég sá bara á einu ári, af því að við hittum hann í barnaafmæli, að hann hafði náð miklum framförum á þessu ári,“ lýsti Gissur.

„Mér fannst því mikilvægt að sjá hvað væri að gerast í þessu húsi, því það stendur ekkert utan á því og það heyrist ekkert talað um þetta.“

Ásbjörn í rúma hálfa öld

Lionsklúbburinn hefur starfað allt frá árinu 1953. Guðmundur Guðbjartsson formaður segir hópinn samstilltan.

„Við erum í því að afla fjár og styrkja nærsvæðið. Það er okkur mikill heiður að geta orðið að liði í svona verkefnum,“ segir hann. „Já, við tökum til hendinni ef við getum og sjáum að hér er unnið afar gott starf.“

Ábendingagátt