Listin lifir í Hafnarborg í sumar – Ókeypis tónleikar í dag
Ókeypis fjölskyldutónleikar á Sönghátíð í Hafnarborg í dag. Tónleikarnir eru innan um sýningu Helga Þorgils á annarri hæðinni, en bæði Sönghátíðin og málverkasýningin hafa fengið toppeinkunnir hjá Morgunblaðinu.
Hafnarborg er opin á sumrin
Sumarið er tíminn í Hafnarborg – Eða sérstaklega þetta góða sumar. Nú stendur Sönghátíðin yfir sem haldin er í tíunda sinn þetta sumarið. Fjölskyldutónleikar, þar sem frítt er inn, verða í dag kl. 17! Komdu og vertu með.
Opnunartónleikar hátíðarinnar fengu fullt hús stiga hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins, fimm stjörnur. Einnig eru tvennar sýningar í gangi í Hafnarborg og fékk sýning Helga Þorgils Friðjónssonar Stór heimur ****1/2 stjörnu í Morgunblaðinu á dögunum.
„Já, sumrin eru stór í Hafnarborg rétt eins og veturnir. Það er heilmikil dagskrá og sýningin hans Helga tekur utan um sönghátíðina,“ segir Aldís Arnardóttir forstöðumaður Hafnarborgar og sýningastjóri.
„Það er einstakt að vera á tónleikum en um leið inni í miðri sýningu. Það gefur annan blæ og önnur áhrif,“ segir hún. „Svo var dómurinn fyrir opnunartónleikana svona glimrandi og setti tóninn fyrir dagskrána sem er framundan. Hún er að klárast með trukki um helgina með óperugala, okkar flottasta fólki, á sunnudag,“ segir hún. „Helgin lítur vel út.“
Aldís segir sýningarnar svo opnar eins og venjulega, safnið milli klukkan 12-17 alla daga nema þriðjudaga. Lesa má í dómi Morgunblaðsins að aðferðir Helga við málverkið séu umhugsunarverðar og í reynd hafi hann viðhaldið sömu aðferðum um langa hríð. „Þótt sumar myndirnar viðrist vera vandlega unnar og póleraðar i frágangi, má, þegar nær er gengið, sjá þunga vinnu þykkrar pensilbeitingar sem eins og ýtir málningu um strigaflötinn; hér á málarinn í líkamlegu og jafnvel þjáningarfullu sambandið við efniviðinn.“ Þessi lýsing er áhugaverð. Er ekki vert að koma og sjá hvort þið sjáið þetta líka!
Í niðurstöðu dómsins segir svo: „Stór heimur er sterk sýning sem staðfestir stöðu Helga Þorgils Friðjónssonar sem eins af merkustu málurum landsins.“
Og aftur að sönghátíðinni í Hafnarborg. Eins og Morgunblaðið hefur framtakið ekki aðeins leitt saman ólíka listahann heldur einnig boðið upp á námskeið (master class) fyrir unga söngvara og söngnemendur í söngsmiðju fyrir börn svo eitthvað sé nefnt. Gagnrýnandinn Magnús Lyngdal Magnússon bendir á að hátíðin hafi fengið íslensku tónlistarverðlaunin sem tónlistarhátíð ársins 2020. Og við getum fullyrt að hátíðin slær ekkert af.
Magnús lýsir upphafstónleikum píanóleikaranum Simon Lepper og sópransöngkonunni Sally Matthews sem upplifun. „Slíkt er ekki öllum listamönnum gefið.“
Sönghátíðin stendur til 28. júní og því helgin til stefnu. Þið sem hafið gaman að tónlist getið náð þessum tónleikum:
- Föstudaginn 26. júní kl. 17
Fjölskyldutónleikar (ókeypis aðgangur)
Solveig Óskarsdóttir, söngkona
Sævar Helgi Jóhannsson, píanóleikari - Laugardaginn 27. júní kl. 17
Hinn eilífi söngur
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Halldóra Ósk Helgadóttir, sópran
Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanóleikari
Bjargey Birgisdóttir, fiðluleikari
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðluleikari
Fidel Atli Quintero Gasparsson, víóluleikari
Júlía Mogensen, sellóleikari
Francisco Javier Jáuregui, gítarleikari - Sunnudaginn 28. júní kl. 17
Óperugala
Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzósópran
Elmar Gilbertsson, tenór
Andri Björn Róbertsson, bassabaritón
Matthildur Anna Gísladóttir, píanóleikari
Já, einir ókeypis en finna má miða á hina á tix.is.
Listin á heima í Hafnarfirði.