Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Orðagull er nýtt málörvunarforrit fyrir spjaldtölvur sem gefið var út í dag á Degi íslenskrar tungu. Orðagull miðar að því að styrkja orðaforða, vinnsluminni, heyrnræna úrvinnslu og máltjáningu. Leitast er við að virkja áhugahvöt nemenda með því að gera námsefnið áhugavert og skemmtilegt og þannig eru m.a. nýtt þau tækifæri sem felast í smáforritum til byggja upp og viðhalda áhuga.
Smáforritið Orðagull er nýtt málörvunarforrit fyrir spjaldtölvur sem gefið var út í dag á Degi íslenskrar tungu. Orðagull miðar að því að styrkja orðaforða, vinnsluminni, heyrnræna úrvinnslu og máltjáningu. Leitast er við að virkja áhugahvöt nemenda með því að gera námsefnið áhugavert og skemmtilegt og þannig eru m.a. nýtt þau tækifæri sem felast í smáforritum til byggja upp og viðhalda áhuga. Smáforritið byggir á efni sem gefið var út 2010 og notið hefur mikillar hylli.
Styrkir mikilvæga undirstöðuþætti máls og læsis
Orðagull hentar elstu börnum í leikskóla og börnum á yngsta stigi grunnskóla. Einnig getur það nýst eldri nemendum sem glíma við erfiðleika hvað varðar vinnsluminni, heyrnræna úrvinnslu, orðaforða og endursögn, sem og nemendum með íslensku sem annað tungumál. Allt eru þetta mikilvægir undirstöðuþættir máls og læsis. Höfundar eru þær Bjartey Sigurðardóttir, talmeinafræðingur og læsisráðgjafi hjá Menntamálastofnun og Ásthildur Bj. Snorradóttir, talmeinafræðingur hjá Skrifstofu fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðarbæjar. Teikningar eru unnar af Búa Kristjánssyni og sá tölvuleikjafyrirtækið Rosamosi um alla hugbúnaðarvinnu. Verkefnið var, fyrra á þessu ári, styrkt af Minningarsjóði Bjarna Snæbjörnssonar og Helgu Jónasdóttur og Barnavinafélaginu Sumargjöf. Auk þess hlaut verkefnið tvisvar sinnum styrki úr Þróunarsjóði námsgagna hjá Rannís. Þær Bjartey og Ásthildur voru verkefnastjórar og í hópi höfunda læsisstefnu Hafnarfjarðarbæjar, Lestur er lífsins leikur og er Orðagull eitt af mörgum afleiddum verkefnum stefnunnar sem nær bæði til leikskóla og grunnskóla.
Málörvunarefni sem hlotið hefur mikla athygli
Smáforritið byggir að mestu á verkefnum úr málörvunarefninu Orðagulli sem gefið var út árið 2010 af sömu höfundum. Málörvunarefnið hefur notið mikillar hylli og er uppselt. Hægt er að nálgast smáforritið Orðagull í App Store og er það frítt til niðurhals. Forritið kemur til með að nýtast jafnt sem kennsluefni í leik- og grunnskólum sem og á heimilum. Í gegnum skráningarkerfi Orðagulls er foreldrum og kennurum gert kleift að meta árangur og fylgjast með framförum. Skráningarkerfið er sett upp á einfaldan og aðgengilegan hátt m.a. til að auðvelda kennurum vinnu við námsmat. Einnig er gert ráð fyrir að nemendur geti líka sjálfir fylgst með eigin framförum.
Grunnurinn Hamranesskóla er risinn. Hverfið er að taka á sig fulla mynd eins og myndir ljósmyndarans Ragnars Th. Sigurðssonar fyrir…
Nú má panta samtal við Valdimar Víðisson bæjarstjóra á netinu. Hnappur er kominn á forsíðu vefjar bæjarins.
Lokun gatna á opnunartíma Jólaþorpsins. Í gildi frá 14.nóvember kl.17:00 til 23.desember kl.20:00.
Vegna flugeldasýningar verður Fjarðargata lokuð föstudaginn 21.nóvember milli kl.19:15-19:30.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri tók á móti hafnfirska Neyðarkallinum í dag. Hafnarfjarðarbær styrkir Björgunarsveit Hafnarfjarðar með kaupum á Neyðarkallinum.
Tillaga að fjárhagsáætlun 2026 var lögð fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar til fyrri umræðu í dag, miðvikudaginn 5. nóvember 2025.
Já, það verður eitthvað gott í pokahorninu og búast má við að allir sem þangað mæti fái eitthvað fallegt á…
Hafnfirskir sundgarpar hafa synt lengst í landsátakinu Syndum tvö ár í röð. Átakið var sett í 5. sinn í gær.
Spennan magnast. Jólaþorpið rís þessa dagana og opnar 14. nóvember. „Hvert einasta ár finnum við nýjar leiðir til að gera…
UPPFÆRT: Hrekkjavakan er á morgun! Veðrið gæti þó spillt fyrir gleðinni. Úrhelli í kortunum. Við hvetjum ykkur til að fylgjast…