Málþing um velferð í stafrænum heimi

Fréttir Tilkynningar

Málþing um velferð barna í stafrænum heimi verður haldið í stóra fyrirlestrarsalnum í Grósku fimmtudaginn 15. febrúar frá kl. 10:30-13:30. Málþingið er hluti af sérstakri fræðsluviku sem tileinkuð er upplýsinga- og miðlalæsi.

Velferð barna í stafrænum heimi

Málþing um velferð barna í stafrænum heimi verður haldið í stóra fyrirlestrarsalnum í Grósku á morgun, fimmtudaginn 15. febrúar frá kl. 10:30-13:30. Málþingið er hluti af sérstakri fræðsluviku sem tileinkuð er upplýsinga- og miðlalæsi. Hún er haldin í annað sinn á Íslandi vikuna 12.-16. febrúar.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra opnar málþingið með ávarpi áður en hinir ýmsu sérfræðingar í málefnum barna stíga á svið og miðla þekkingu sinni ásamt því að kynna niðurstöður úr nýlegum rannsóknum og spennandi verkefni sem framundan eru. Þá mun málþinginu ljúka með pallborðsumræðum þar sem framsækin ungmenni úr ólíkum áttum fá að eiga sviðið, svara spurningum úr sal og ræða miðlalæsi út frá ýmsum hliðum. Athugið að ekki verður streymt frá málþinginu en það verður tekið upp og gert aðgengilegt eftir að því lýkur.

Fundarstjóri er Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og fyrirlesari.

Dagskrá málþingsins má finna hér fyrir neðan:

Ábendingagátt