Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sýningin MENN beinir sjónum að stöðu karla við upphaf 21. aldar og þeim breytingum sem orðið hafa á högum þeirra í ljósi breyttrar stöðu kvenna.
Á sýningunni verða sýnd verk eftir fjóra karllistamenn í fremstu röð, þá Curver Thoroddsen, Finn Arnar Arnarson, Hlyn Hallsson og Kristinn G. Harðarson. Verkin sem valin hafa verið til sýningar eru unnin í fjölbreytta miðla bæði vídeóverk, ljósmyndir, málverk, teikningar og útsaumsverk. Í verkunum takast listamennirnir á við spurningar um stöðu karla innan fjölskyldu hvað varðar hugmyndir um þátttöku í heimilislífi, ábyrgð á afkomu og uppeldi barna. Jafnframt verða á sýningunni verk sem sækja myndefni á slóðir sem fyrir mörgum eru dæmigerðar fyrir konur og þeirra reynsluheim.
Verkin vekja upp áleitnar spurningar um karlmennsku og hugsanlega misvísandi skilaboð frá umhverfi og samfélagi. Megineinkenni verkanna er þó sú nánd sem lesa má úr afstöðu listamannanna til fjölskyldu og barna um leið og í sumum verkanna má greina tilvistarkreppu.
Um listamennina:
Kristinn G. Harðarson (f. 1955) hefur á ferli sínum fengist við ólík viðfangsefni sem flest tengjast þó samfélagsrýni. Nærumhverfið er honum hugleikið og nokkur hluti verka hans tengist stöðu hans sem föður, heimilinu og fjölskyldulífi. Þessum verkum hefur hann tíðum fundið form í miðla sem löngum hafa verið tengdir sköpun kvenna svo sem í útsaum. Kristinn nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1973 – 1977 og stundaði framhaldsnám við listaakademíuna í Haag í Hollandi.
Finnur Arnar Arnarson (f. 1965) hefur fundið hugmyndum sínum farveg í ljósmyndum, vídeóverkum, skúlptúrum og innsetningum. Hann sækir sér innblástur í sitt nánasta umhverfi og hefur unnið verk þar sem fjölskylda hans er viðfangsefnið en einnig hefur hann unnið verk í félagi við fjölskyldu sína. Finnur stundaði myndlistarnám við fjöltæknideild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987 – 1991. Hann hefur samhliða vinnu sinni að myndlist hannað leikmyndir fyrir leikhús og sýningar fyrir ýmis menningarsögusöfn.
Hlynur Hallsson (f. 1968) hefur vakið athygli fyrir verk sem fjalla um samfélagsmál og pólitík í víðu samhengi og fjalla verk hans gjarnan um samskipti, skilning, tengsl, stjórnmál og hversdagslega hluti. Hlynur stundaði myndlistarnám við Myndlistaskólann á Akureyri og í fjöltæknideild Myndlista- og handíðaskóla Íslands áður en hann hélt til framhaldsnáms í Þýskalandi þaðan sem hann lauk meistaragráðu 1997. Hlynur hefur setið á Alþingi og sinnt trúnaðarstörfum fyrir myndlistarmenn. Hann er nú forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri.
Curver Thoroddsen (f. 1976) er þekktur fyrir gjörninga og önnur listaverk þar sem listin og hversdagslegar athafnir renna saman. Verk hans eiga sér oft stað fyrir utan hefðbundin sýningarrými eða í sýningarsölum sem hann umbreytir og gerir að heimili sínu. Curver nam myndlist við Listaháskóla Íslands og við School of Visual Arts í New York þaðan sem hann lauk MFA námi 2009. Jafnframt því að stunda myndlist hefur Curver verið virkur tónlistarmaður m.a. með Ghostigital.
Sýningarstjóri er Ólöf K. Sigurðardóttir.
Dagskrá í tengslum við sýninguna:
Sunnudagur 29. mars kl. 15 Listamannsspjall – Hlynur Hallsson Fimmtudagur 2. apríl kl. 15 Listamannsspjall – Kristinn G. Harðarson Laugardagur 18. apríl kl. 14 Hringborð – Málþing um sýninguna MENN í samstarfi við Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands (RIKK). Sunnudagur 3. maí kl. 15 Listamannsspjall – Finnur Arnar Arnarson Fimmtudagur 7. maí kl. 20 Listamannsspjall – Curver Thoroddsen
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…