Norðurbakkinn og -garðurinn taka á sig nýja mynd
Norðurbakkinn í Hafnarfirði hefur á undanförnum árum tekið stakkaskiptum. Þar sem áður var fyrst og fremst hafnarsvæði hefur smám saman orðið til lifandi bæjarrými þar sem íbúabyggð, útivist og hafnarsvæði fara saman og skapa einstakt umhverfi við sjóinn. Hafnarfjarðarhöfn hefur haft umsjón með umfangsmiklum framkvæmdum á svæðinu í góðu samstarfi við Hafnarfjarðarbæ.
Höfn, útivist og bæjarlíf mætast
Norðurbakkinn í Hafnarfirði hefur á undanförnum árum tekið stakkaskiptum. Þar sem áður var fyrst og fremst hafnarsvæði hefur smám saman orðið til lifandi bæjarrými þar sem íbúabyggð, útivist og hafnarsvæði fara saman og skapa einstakt umhverfi við sjóinn.
Fjölbreytt útivistarsvæði sem býr til tengingar
Hafnarfjarðarhöfn hefur haft umsjón með umfangsmiklum framkvæmdum á svæðinu í góðu samstarfi við Hafnarfjarðarbæ. Markmið verkefnisins hefur verið að styrkja strandlengjuna, bæta öryggi og aðgengi og skapa fjölbreytt útivistarsvæði sem tengir Norðurbakkann enn betur við miðbæ Hafnarfjarðar og áfram að Flensborgarhöfn.
Aðgengi allt árið um kring
Lokafrágangur Norðurgarðs markar mikilvægan áfanga í uppbyggingunni. Garðurinn var steyptur upp og styrktur og klæddur með timburdekki. Þá var gert gott aðgengi að garðinum, smíðuð stór setsvæði og útsýnispallur og útbúin aðstaða fyrir veiðimenn. Nýr 5 metra hár ljósviti var útbúinn fremst á garðinum og komið fyrir innfelldri lýsingu á öllu svæðinu. Á sama tíma hefur strandstígurinn verið þróaður áfram þannig að íbúar og gestir geti notið göngu- og hjólaleiða meðfram sjónum allt árið um kring. Það sem gerir Norðurbakkann sérstakan er að svæðið hefur haldið sínum hafnarkarakter þrátt fyrir mikla uppbyggingu. Þar mætast enn starfsemi hafnarinnar, smábátar, fiskiskip og sívaxandi mannlíf við sjóinn. Um leið hefur orðið til nýtt hverfi þar sem íbúar, gestir og ferðafólk njóta þess að dvelja, ganga og upplifa hafnarsvæðið á nýjan hátt.
„Norðurbakkinn er gott dæmi um hvernig hægt er að þróa hafnarsvæði með virðingu fyrir sögu þess um leið og skapað er aðlaðandi umhverfi fyrir íbúa og gesti. Við erum stolt af þeirri vegferð sem hefur átt sér stað og hlökkum til að sjá svæðið lifna enn frekar við á komandi árum,“ segir Lúðvík Geirsson hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar.
Þar sem sjórinn, sagan og mannlífið mynda sterka heild
Saga Norðurbakkans endurspeglar jafnframt þróun Hafnarfjarðar sjálfs. Náttúrulega höfnin lagði grunn að uppbyggingu bæjarins og gegnir enn lykilhlutverki í atvinnu- og samfélagslífi. Með markvissri uppbyggingu hefur tekist að skapa svæði þar sem saga hafnarinnar og framtíðarsýn um aðlaðandi bæjarumhverfi fara hönd í hönd.
Norðurbakkinn er því ekki aðeins vettvangur framkvæmda heldur nýr áfangastaður í Hafnarfirði þar sem sjórinn, sagan og mannlífið mynda sterka heild og bjóða bæði íbúum og gestum að njóta eins fallegasta hafnarsvæðis landsins.
