Ný kennsluaðferð tekin upp við lestur í fyrstu bekkjunum

Fréttir

Hafnarfjarðarbær stígur stórt skref í að efla læsiskennslu í 1. og 2. bekk grunnskóla bæjarins nú í vetur með því að nýta gagnreyndar kennsluaðferðir til að styrkja grunnþætti í lestri barna strax við upphaf skólagöngu.

Lestur efldur í grunnskólum Hafnarfjarðar 

Um 100 hafnfirskir kennarar sátu á skólabekk í Skarðshlíðarskóla í morgun. Ástæðan, Hafnarfjarðarbær stígur nú stórt skref í að efla læsiskennslu með innleiðingu á gagnreyndu lestrarkennsluaðferðunum K-PALS og G-PALS í 1. og 2. bekk grunnskóla bæjarins nú í vetur.

Markmiðið er að styrkja lestrarnám barna strax frá upphafi skólagöngu og tryggja þeim markvissan stuðning við að ná góðum tökum á lestri. 

Innleiðingin hefst nú við upphaf skólaárs og verður lögð áhersla á að starfsfólk skólanna fái öfluga fræðslu og stuðning við að tileinka sér aðferðirnar. 

Hafnarfjarðarbær hefur fengið til samstarfs einn af færustu læsisfræðingum landsins, Dr. Auði Soffíu Björgvinsdóttur, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Auður leiðir fræðslu og faglegan stuðning við innleiðinguna auk þess að halda utan um rannsókn á verkefninu á vegum Menntavísindasviðs HÍ.

Starfsfólk fær markvissa þjálfun 

Fyrsti hluti starfsþróunarnámskeiðs vegna innleiðingarinnar fer einmitt fram akkúrat núna í Skarðshlíðarskóla. Þar koma saman umsjónarkennarar, sérkennarar, stuðningsfulltrúar og kennarar íslensku sem annars tungumáls sem starfa með börnum í 1. og 2. bekk grunnskóla Hafnarfjarðar.

K-PALS og G-PALS byggja á skipulögðum og gagnreyndum kennsluaðferðum þar sem nemendur fá fjölmörg tækifæri til virkrar þátttöku og markvissrar þjálfunar í grundvallarþáttum lestrar.  

Kennsluaðferðirnar hafa það að markmiði að efla hljóðavitund, umskráningu og lesfimi nemenda. Þegar unnið er með K- og G-pals aðferðirnar vinna nemendur í  pörum og aðstoða hver annan við að bæta lesturinn. Það fer því fram mikil og markviss lestrarþjálfun þegar unnið er með Pals-aðferðirnar. 

 Aðferðirnar gera kennurum jafnframt kleift að fylgjast vel með framförum nemenda og bregðast snemma við þegar þörf er á auknum stuðningi. 

Lagt í langtímaverkefni

Með sameiginlegri innleiðingu í grunnskólum bæjarins er stefnt að því að skapa enn sterkari faglegan grunn undir lestrarkennslu yngstu nemendanna. Rannsókn Menntavísindasviðs mun jafnframt gefa mikilvægar upplýsingar um hvernig innleiðingin gengur og hvaða áhrif aðferðirnar hafa á nám og framfarir nemenda. 

Verkefnið er þannig bæði markviss fjárfesting í starfsþróun kennara og, umfram allt, í læsi og námsframtíð barna í Hafnarfirði. 

Já, það er gaman að lesa! 

 

Ábendingagátt