Nýjar reglur um félagslegt húsnæði

Fréttir

Nýjar reglur um félagslegt leiguhúsnæði hafa tekið gildi hér hjá Hafnarfjarðarbæ, en úthlutunin er ein af meginstoðum velferðarþjónustu. Nýr kafli um húsnæði fyrir fatlað fólk hefur verið bætt við.

Félagsleg húsnæði ein meginstoðin

Nýjar reglur um félagslegt leiguhúsnæði hafa tekið gildi hér hjá Hafnarfjarðarbæ, en úthlutunin er ein af meginstoðum velferðarþjónustu.

Í nýuppfærðu reglunum hefur nýjum kafla verið bætt við.  Hann varðar úthlutun á húsnæði fyrir fatlað fólk í samræmi við lög um þjónustu við fatlað fólk (nr. 38/2018) með langvarandi stuðningsþarfir og reglugerð um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk (nr. 370/2016). Reglurnar hafa verið skilgreindar betur og skerptar.

Breyting frá fyrri reglum:
  • Eingöngu er hægt að sækja um eina tegund húsnæðis.
  • Ákvæði um að umsækjandi eigi lögheimili í Hafnarfirði fellur út. Umsækjendur fá stig að hafa haft lögheimili í 12 mánuði eða lengur.
  • Gerð er krafa um að í það minnsta 6 mánuðir séu eftir af gildistíma dvalarleifis
  • Umsækjandi skal ekki vera eigandi húsnæðis.
  • Ákvæði vegna eldri vanskila á húsaleigu.
  • Leigusamningar verða nú ótímabundir frá upphafi leigutíma, voru áður tímabundir til sex mánaða.
  • Fermetraverð fylgir mánaðarlegum breytingum vísitölu neysluverðs til verðtryggingar.
  • Leigutaki í sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk, skal gera sérstakan samning um þjónustu og stuðning sem veittur er.
  • Flutningur milli íbúða: Ítarlegri skoðun á núverandi íbúð, leigugreiðslur og umgengni/kvartanir.
Forgangsröðun og úthlutun:
  • Úthlutað er eftir fjölskyldustærð, líkamlegu heilsufari umsækjenda og fjölskyldumeðlima.
  • Umsækjandi sem fær úthlutað húsnæði, hefur tvo daga til að staðfesta húsnæðið, var áður sjö dagar.
  • Hafni umsækjandi úthlutun tvisvar án málefnalegra ástæðna, verður umsókn lokað.

Fjölskylduráð hefur heimildir til að veita undanþágu frá reglum.

 

Ábendingagátt