Nýr kafli hefst í sögu bókasafnsins
Nýr kafli hefst í sögu Bókasafns Hafnarfjarðar þegar safnið opnar í nýju húsnæði í Firði strax eftir verslunarmannahelgi. Þar bíður bæjarbúa bjart, hlýlegt og lifandi safn fyrir alla aldurshópa. Safnið opnar kl. 9 miðvikudaginn 5. ágúst og rúmri viku síðar eða fimmtudaginn 13. ágúst verður opnunarhátíð fyrir alla áhugasama með dagskrá sem fyllir öll rýmin af lífi.
„Við hlökkum til að fylla nýja safnið af lífi“
Nýr kafli hefst í sögu Bókasafns Hafnarfjarðar þegar safnið opnar í nýju húsnæði í Firði strax eftir verslunarmannahelgi. Þar bíður bæjarbúa bjart, hlýlegt og lifandi safn fyrir alla aldurshópa. Safnið hefur verið lokað frá því í maí vegna flutninga í nýtt húsnæði á 2. hæð í Firði. Stefnt var að opnun í júlí, en henni seinkar um nokkra daga vegna umfangs flutninganna. Safnið opnar kl. 9 miðvikudaginn 5. ágúst og rétt um viku síðar eða fimmtudaginn 13. ágúst verður opnunarhátíð fyrir alla áhugasama með dagskrá sem fyllir öll rýmin af lífi. Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður safnsins, hefur leitt flutninginn á safninu með sínu öfluga teymi. Hvað segir hún um flutninginn, nýja rýmið og það sem bíður gesta?
Hvernig hefur flutningurinn gengið?
„Þetta hefur verið bæði stórt og skemmtilegt verkefni. Það er ekki á hverjum degi sem rúmlega aldargamalt bókasafn flytur í nýtt húsnæði. Það er eitt að flytja húsgögn og búnað, en annað að flytja heilt bókasafn með öllum sínum safnkosti, þjónustu og starfsemi. Það þarf að pakka, merkja, raða, koma fyrir og hugsa hvert smáatriði. Starfsfólkið okkar, bæði innan bókasafnsins og víðar, hefur staðið sig ótrúlega vel og allir lagt mikið í verkefnið. Starfsfólkið þekkir safnið, safnkostinn og lánþegana best og sú þekking skiptir miklu máli þegar nýtt rými er mótað. Hér spiluðu Kassaleigan og Landskerfi bókasafna líka gríðarlega stórt hlutverk. Þetta er sameiginlegt verkefni margra og það verður mjög ánægjulegt að opna dyrnar loksins aftur.“
Hvað verður nýtt í safninu?
„Fólk mun koma inn í bjartara, opnara og aðgengilegra safn. Við fáum betri rými fyrir börn, fjölskyldur, ungmenni, lestur, viðburði og skapandi starf. Bækurnar verða áfram hjartað í starfseminni, en safnið verður líka lifandi samverustaður. Við höfum á undanförnum árum verið að þróa safnið í takt við breyttar þarfir samfélagsins. Bókasafn í dag snýst ekki aðeins um að fá bækur að láni, heldur líka um aðgang að þekkingu, tækni, aðstöðu og samfélagi. Nú aukum við líka opnunartímann og verðum með opið til kl. 19 alla virka daga og frá kl. 11-17 um helgar. Nú verður líka opið á sunnudögum.“
Hvers hlakkar þú mest til?
„Ég hlakka mest til að sjá fólk koma inn. Að sjá börn finna sér bækur, fjölskyldur skoða nýja rýmið og bæjarbúa setjast niður, lesa, spjalla og njóta. Þá lifnar safnið við. Við höfum lengi séð bókasafnið sem stað fyrir alla. Í nýja húsnæðinu fáum við betri aðstöðu til að þróa það hlutverk enn frekar. Þar verður auðveldara að halda fjölbreytta viðburði, taka á móti hópum, bjóða upp á fræðslu, sögustundir, námskeið, skapandi vinnu og menningartengda dagskrá.“
Hvað viltu segja við Hafnfirðinga?
„Við hlökkum til að bjóða ykkur velkomin. Þetta er safnið okkar allra og við vonum að fólk komi, skoði og taki þátt í að fylla nýja rýmið af lífi.“
Flutningur Bókasafns Hafnarfjarðar í nýtt húsnæði í Firði markar tímamót í sögu safnsins og í menningarlífi bæjarins. Safnið hefur fylgt Hafnfirðingum í rúma öld og tekur nú næsta skref sem nútímalegur, opinn og lifandi vettvangur fyrir bæjarbúa á öllum aldri. Þar mætast kynslóðir, hugmyndir og sögur; börn stíga sín fyrstu skref inn í heim bóka, nemendur finna næði til náms og bæjarbúar sækja sér fróðleik, innblástur og samveru.
Opinn, aðgengilegur og lifandi vettvangur
Framtíðarsýn safnsins er að vera opinn, aðgengilegur og lifandi vettvangur fyrir þekkingu, menningu, sköpun og samtal. Safnið á að vera staður þar sem fólk á öllum aldri finnur sitt rými — hvort sem það kemur til að lesa, læra, vinna, skapa, hitta aðra eða einfaldlega njóta þess að vera. Með nýju húsnæði skapast tækifæri til að þróa þjónustuna áfram í takt við þarfir samfélagsins og styrkja hlutverk bókasafnsins sem hjarta menningar- og samfélagslífs í Hafnarfirði.
„Fyrsti stóri viðburðurinn á nýju safni verður búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar helgina 4.- 6. september og þá má gera ráð fyrir mjög miklum fjölda gesta, Í fyrra sóttu um 10.000 gestir hátíðina heim. Við getum farið að láta okkur hlakka til, “ segir Sigrún að lokum.



