Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Framkvæmdum við nýjan leikskóla, Áshamar í Hamranesi, miðar vel áfram og stefnir allt í að áfangaskil í desember og verklok í febrúar standist. Byggingareiningar leikskólans bárust nýverið til landsins. 13 af 42 einingum eru komnar á staðinn og stefnt er á að klára uppsetningu í síðasta lagi á mánudag. Einingarnar koma fullbúnar með veggjum, gólfi og þaki og þeim raðað saman teikningum samkvæmt. Stefnt er að opnum leikskólans í febrúar 2025 og þá eiga hús, hluti lóðar og bílastæði að vera tilbúin.
„Við ákváðum að fara nýjar leiðir í uppbyggingu leikskólans bæði með hagkvæmni að leiðarljósi og til að svara ákalli um fleiri leikskólapláss í hverfinu hraðar. Leikskólar í nærliggjandi hverfum hafa náð að anna eftirspurn en nú glittir í opnun á fyrri leikskólanum af tveimur í þessu nýjasta hverfi bæjarins, Hamranesi,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. „Það stefnir allt í að við getum tekið á móti yngstu íbúum Hamraness inn í hverfisleikskóla fljótlega eftir áramótin“.
Leikskólinn er byggður upp með Modules timbureiningum sem settar eru saman í verksmiðju við bestu aðstæður. Leikskólinn verður á einni hæð í L-laga formi um eitt miðsvæði sem mun halda utan um starfsemina og leikskólalóðina auk þess að mynda skjól. Það var í desember 2023 sem Hafnarfjarðarbær óskaði eftir tilboðum í hönnun og byggingu á sex deilda leikskóla við Áshamar 9 í Hamraneshverfi í Hafnarfirði, samtals um 1.200 m2. Um alútboð var að ræða og bjóðendur beðnir um að vinna samkeppnistillögur að húsnæði fyrir nýja leikskóla. Sjö tilboð bárust og samþykkt að taka tilboði Þarfaþings hf. Hugmynd Þarfaþings þótti afar stílhrein, heimasvæðin björt, litrík og aðlaðandi, aðkomuleiðir greinilegar og góð tenging milli allra svæða. Þarfaþing byggir og fullgerir húsnæðið án lóðar og bílastæða. Grafa og grjót sá um jarðvinnu vegna bílastæða og húss og uppbyggingu lóðar við leikskólann. Fyrirtækið Landslag sá um hönnun lóðar og bílastæða. Viðmið um verklok eru enn í febrúar 2025, með áfangaskilum 19. desember 2024.
Kristján Kristjánsson verkfræðingur VSB verkfræðistofa, Goði Ingvar Sveinsson verkefnastjóri JT verk, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri hjá Hafnarfjarðarbæ, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Ævar Sveinsson yfirverkefnastjóri Þarfaþings.
Hamranes er 25 hektara nýbyggingarsvæði sunnan Skarðshlíðarhverfis og Vallahverfis í Hafnarfirði. Framkvæmdir við lóðir í Hamranesi hófust í upphafi árs 2021. Í hverfinu munu rísa um 1.900 íbúðir þegar uppi er staðið og er áætlaður íbúafjöldi um 4.750. Í hverfinu er gert ráð fyrir tveggja hliðstæðu grunnskóla með fjögurra deilda leikskóla, Hamranesskóla. Hafnarfjarðarbær er með það verkefni í alútboði. Auk 6 deilda leikskólans sem er í byggingu mun þarna einnig rísa hjúkrunarheimili. Samanlagt er áætlað að íbúafjöldi Hamraness og Skarðshlíðarhverfis verði rúmlega 6.000 í um 2.500 íbúðum. Í Vallahverfi sem stendur næst þessum hverfum búa rétt rúmlega 5.700 íbúar í dag. Þannig er gert ráð fyrir tvöföldun á heildarfjöldi íbúa á þessu svæði sunnan Reykjanesbrautar yst í Hafnarfirði.
Frisbígolffélag Hafnarfjarðar í samstarfið við Folfdiskar.is færði í gær Hafnarfjarðarbæ 13 frisbígolfskörfur og hundruð diska til að stunda frísbígolf innandyra…
Yfir 100 íbúðir og verslanir á jarðhæð verða við Reykjavíkurveg 60-62. Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu nýs Hrauns vestur og…
„Áttu erlendan vin eða erlendan nágranna sem er nýfluttur í bæinn?“ spyrja brúarsmiðir Hafnarfjarðarbæjar sem hjálpa foreldrum af erlendum uppruna…
Hafnarfjarðarbær hlaut í gær nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2025. Bærinn hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun með leiðandi umbótastarfi…
Hvað gerir bæjarstjóri? spurðu elstu börnin í Hlíðarendaleikskóla þegar þau heimsóttu Valdimar Víðisson bæjarstjóra nú í morgun. Börnin komu með…
„Ég hvet því íbúa Hafnarfjarðar til þess að fara inn á heimasíðu UNICEF þar sem hægt er að sækja sér…
Aldrei hafa fleiri sótt um í Verkhernum og í ár. Verkherinn er atvinnuúrræði fyrir hafnfirsk ungmenni með skerta starfsgetu. Verkherinn…
Leikskólinn Hörðuvellir fagnaði 90 ára afmæli í dag, föstudag. Börnin sungu og stjórnendur rifjuðu upp söguna. „Leikskólinn Hörðuvellir hefur verið…
Fjöldi hafnfirskra fyrirtækja kynntu starfsemi sína á ráðstefnuni HITTUMST í Hafnarhúsinu í gær. Bæjarstjórinn kíkti við ásamt stjórum nágrannasveitarfélaganna.
Hafnarfjarðarbær og GETA hjálparsamtök hafa aftur tekið höndum saman og bjóða fjölskyldum í Hafnarfirði að taka þátt í að rækta…