Opnunartími safna og sundlauga um Hvítasunnuhelgina  

Fréttir

Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um helgina og njóta samveru og útiveru í faðmi fjölskyldu og vina. Tilvalið að skella sér í sund eða á safn!

Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um helgina og njóta samveru og útiveru í faðmi fjölskyldu og vina. Tilvalið að skella sér í sund eða á safn!

Komdu í sund eða á safn um helgina

Heilsubærinn Hafnarfjörður er að mörgu leyti einstakur bær, ekki síst fyrir lifandi og skemmtilegan miðbæ, heillandi hafnarsvæði og gott aðgengi að fjölbreyttum og fallegum náttúruperlum. Margir áhugaverðir staðir eru í göngufæri frá miðbænum, til dæmis Hellisgerði, Víðistaðatún, Lækurinn og Hamarinn auk þess sem Hafnfirðingar búa við þann munað að vera með Helgafellið, Hvaleyrarvatn, Ásfjallið og Ástjörn í bakgarðinum hjá sér. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um Hvítasunnuhelgina og njóta samveru og útiveru í faðmi fjölskyldu og vina. Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir:

Menningarstofnanir

Hafnarborg Byggðasafn Bókasafn
17. maí 12-17 Lokað 9-17
18. maí 12-17 11-17 12-16
19. maí 12-17 11-17 Lokað
20. maí 12-17 Lokað Lokað

Sundlaugar

Ásvallalaug Suðurbæjarlaug Sundhöll
17. maí 6:30-20 6:30-20 6:30-21
18. maí 8-18 8-18 Lokað
19. maí Lokað 8-17 Lokað
20. maí 8-17 8-17 Lokað

Komdu í sund og á safn!

Ábendingagátt