Raddirnar nýttar á fyrsta Barnaþingi Hafnarfjarðarbæjar

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Fyrsta Barnaþing Hafnarfjarðarbæjar var haldið í morgun í Skátaheimilinu. Börn úr 5.-7. bekk grunnskóla bæjarins tóku þátt. „Það er ótrúlega mikilvægt að hafa rödd og nýta hana,“ sagði formaður Ungmennaráðsins í opnunarávarpi sínu.

 

Barnaþing Hafnarfjarðar 2026

Fyrsta Barnaþing Hafnarfjarðarbæjar var haldið í morgun í Skátaheimilinu. Börn úr 5.-7. bekk grunnskóla bæjarins tóku þátt.

„Þetta í fyrsta skipti sem nemendur á miðstigi úr öllum hverfum Hafnarfjarðar fá tækifæri til að koma saman og láta rödd sína heyrast. Það er stórt skref og þið eruð hluti af því,“ sagði Elísa Axelsdóttir, formaður Ungmennaráðs Hafnarfjarðar, þegar hún fagnaði Barnaþingi Hafnarfjarðar í opnunarávarpi sínu.

Þetta fyrsta Barnaþing Hafnarfjarðar var haldið í skátaheimili Hraunbúa við Víðistaðatún. Dagskráin var þétt. Eftir opnunarávarpið hófst borðavinna þar sem ungmennin fóru yfir barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og ræddu. Svo fengu þau hressingu áður en þau hófu svo aftur vinnu sína. Þau luku deginum á hádegisverði sem var að sjálfsögðu pizza.

Ungmennaráð er er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 13–18 ára til að koma sínum skoðunum til réttra aðila innan stjórnsýslu bæjarins.

„Það er ótrúlega mikilvægt að hafa rödd og nýta hana. Við í ungmennaráði höfum sjálf fengið að upplifa það, til dæmis þegar við tókum þátt í tillögufundi bæjarstjórnar og settum fram okkar hugmyndir. Sú reynsla sýndi okkur að það sem við höfum að segja skiptir raunverulega máli og að það er hlustað á okkur,“ sagði hún.

„Einnig er gott að vita af Ungmennaráði Hafnarfjarðar, sem vinnur að því að koma sjónarmiðum ungs fólks á framfæri. Þegar þið farið í unglingadeild gefst ykkur tækifæri til að sækja um að vera hluti af því starfi og hafa enn meiri áhrif,“ sagði hún.

Hún hvatti unga fólkið til að muna að allar hugmyndir séu góðar. „Það er engin hugmynd of lítil eða of skrýtin. Notið röddina ykkar, segið það sem ykkur finnst og takið þátt. Niðurstöður dagsins verða notaðar til að gera Hafnarfjörð að enn betri bæ fyrir börn og ungmenni til að búa í.“

Við tökum undir orð Elísu sem sagði að lokum. „Njótið dagsins, takið þátt og hafið gaman.“

 

Ábendingagátt