Ratleikurinn Hafnarfjarðar 2026 – Fer mjög vel af stað

Fréttir

Ratleikur Hafnarfjarðar er hafinn í 30. sinn. Markmið þessa vinsæla leiks er að leiða þátttakendur vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar til að njóta útivistar og náttúru. Lögð eru 27 merki vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar.

30. ratleikur Hafnarfjarðar

Hraunin ofan Hafnarfjarðar er þema ratleiks Hafnarfjarðar í ár. Leikurinn leiðir þátttakendur á áhugaverði staði víðs vegar um bæjarlandið. Ratleikur Hafnarfjarðar er nú lagður í þrítugasta sinn.

„Ég kem að honum í 20 skipti,“ segir Guðni Gíslason, eigandi Hönnunarhússins og skáti. Hann gefur leikinn út og leggur í upplandinu. „Við höfum þrír séð um leikinn í gegnum tíðina. Þetta er virkilega gaman,“ segir hann og merkir aukinn áhuga.

„Þátttakan er góð aðferð til að kynnast upplandinu,“ segir hann. Eins og segir á vef ratleiksins hefur Ómar Smári Ármannsson, fornleifa­fræðingur, tekið efnið saman um hvern og einn ratleiksstaðinn.

Nálgast má kortin fyrir leikinn frítt á eftirtöldum stöðum:

  • Fjarðarkaup
  • Sundhöll Hafnarfjarðar
  • Suðurbæjarlaug
  • Ásvallalaug
  • Ásvöllum
  • Ráðhúsinu, þjónustuveri
  • Firði, verslunarmiðstöð
  • Fjallakofanum

Finna má fróðleik um hraunin og staðina í styttri útgáfu á ratleikskortunum en lengri útgáfu og mynd frá stöðunum hér.

„Þetta er svo jákvætt og ég sé að fólk fær ánægju út úr þátttökunni sem gerir starfið skemmtilegra. Þetta er fjör,“ segir Guðni og bendir þátttakendum á Facebook-hópinn Ratleikur Hafnarfjarðar – Þátttakendur.

„Fólk tekur þátt aftur og aftur og kemur víða að til þess,“ segir Guðni.

  • Smelltu hér til að skoða ratleiksstaðina

Og munið – Veglegir vinningar eru boði og fjölmargir útdráttarvinningar fyrir þá sem skila inn lausnum og mæta á uppskeruhátíðina í haust.

Leikurinn er lagður með stuðningi Heilsubænum Hafnarfirði.

Við hvetjum ykkur til að taka þátt!

Myndir / Guðni Gíslason

Ábendingagátt