Ríflega tólf þúsund sóttu Heima og himingeima

Fréttir

Ríflega tólf þúsund mættu á Heima og himingeima í Hafnarfirði um helgina. Laugardagurinn var stærsti dagurinn af þessum þremur og iðaði bókasafnið af ævintýrum og gleði. Jessica Chambers vann cosplay-keppni hátíðarinnar og keppir fyrir Íslands hönd á alþjóðlegum vettvangi.

Heimar og himingeimar 2026

Ys og þys var á búninga- og leikjahátíðinni Heimum og himingeimum en ríflega tólf þúsund gestir sóttu hana. Hátíðin var haldin í þriðja sinn.

Metþátttaka var í cosplay-keppni hátíðarinnar en alls tóku 14 þátt. Metnaðurinn var mikill og búningarnir og leikmunirnir eftir því. Jessica Chambers frá Transatlantica Crochet cosplayer bar sigur úr býtum sem drottningin Anna.

„Standardinn í ár var einfaldlega truflaður. Hér er fólk sem heklar og hannar allt frá grunni – þetta er nett klikkun á besta mögulega hátt,“ segir Unnur Helga Möller, framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Kjóll Jessicu hafi einmitt allur verið heklaður.

Hér má sjá Jessicu Chambers með gulu kórónuna í græna heklaða kjónum sínum sem Anna drottning.

Nú bíður Jessicu það verkefni að keppa fyrir Íslands hönd í úrslitum NCC á NärCon í Svíþjóð. NCC er ein stærsta cosplay-keppni Evrópu. Um þrjátíu þúsund gestir sækja hátíðina árlega.

Um 50 sjálfboðaliðar stóðu sem klettur að baki hátíðinni og lögðu meðal annars hönd á plóg við uppsetningu leikmynda og muna. Frágangur stendur enn yfir og beið starfsfólks meðal annars það verkefni í morgun að taka niður mannætuplöntu og geimskip sem enn stóðu í salnum – sem eins konar minnisvarðar um afar viðburðamikla og litríka helgi.

Spila

Unnur segir hátíðina sýna vel hversu öflug íslenska búninga- og leikjasenan er. Um leið sé að byggjast upp sífellt meiri þekking og reynsla í kringum Heima og himingeima. Mikilvægt sé að hlúa áfram að samfélaginu sem hefur myndast í kringum hátíðina.

„Núna höldum þétt utan um þessa senu og ekki síður utan um þennan ótrúlega hóp sjálfboðaliða sem gerir hátíðina mögulega. Það sem þau leggja á sig er ómetanlegt.“

Heimar og himingeimar hafa á skömmum tíma skapað sér sterkan sess meðal viðburða í Hafnarfirði. Þar fær fólk rými til að hittast á eigin forsendum, deila áhugamálum sínum og sköpun og kynnast heimum sem það hefur jafnvel aldrei áður stigið inn í.

Já, heimarnir halda áfram að stækka.

 

Myndir/ Myndasyrpan hér fyrir neðan er frá opnun á sunnudeginum – gær.
Ábendingagátt