Skapandi sumarstörf – Aster
Listakvárið Aster vinnur á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að því að teikna eftir málverki frá árinu 1903 sem ber heitið “The love potion” eftir Evelyn De Morgan. Markmið þess er að læra af því og nýta reynsluna í að skapa sitt eigið listaverk.
100 ára plús – Endursköpun á klassískum málverkum
Listakvárið Aster vinnur á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að því að teikna eftir málverki frá árinu 1903 sem ber heitið “The love potion” eftir Evelyn De Morgan. Aster segist læra mikið af því að herma eftir listaverkum annarra og stefnir að því að skapa sitt eigið verk í von um að aðrir geti sótt innblástur í það og notið góðs af þeirri reynslu sem hán hefur öðlast í gegnum ferlið. Aster nýtir blýant og penna til að endurskapa listaverkin með sínu handtaki.
Bauð upp á léttan ratleik á 17.júní
Eflaust hafa gestir og gangandi einnig rekist á Aster á þjóðhátíðardaginn, þegar hán var á flakki um bæinn að kríta stjörnur og bauð fólki þar með í léttan og skemmtilegan ratleik.
Við hvetjum ykkur eindregið til að fylgjast vel með þessu unga og skapandi listakvári sem og mæta á Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa í Nýsköpunarsetrinu við lækinn þann 6.ágúst næstkomandi. Öll eru velkomin.
UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2026
Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða.
Í ár eru níu fjölbreytt verkefni sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega út sumarið.

