Skapandi sumarstörf – Ish / Plokking Rusl!
Ish Sveinsson Houle, rithöfundur og blaðamaður, vinnur á vegum skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár að plokka rusl og setja saman litla bók eða „Zine“ eins og það kallast á ensku.
Ish Sveinsson Houle, fædd 2001, er rithöfundur, blaðamaður og nú yrkjandi ruslaplokkari. Hún er hálf-íslensk og hálf-bandarísk, en flutti til Íslands árið 2023 og byrjaði að læra íslensku árið 2024. Hún vann hjá The Reykjavík Grapevine í tvö ár og hefur gefið út fimm ljóð í Leirburði, ásamt fleiri ritum sem hafa verið birt í Bandaríkjunum.
Að plokka rusl gefur manni rými til að hugsa
Plokking Rusl! er verkefni Ish Sveinsson Houle á vegum Skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði í ár. Verkefnið fellst í því að Ish fer víðsvegar um bæinn að plokka rusl og segir það veita sér innblástur og hugarrými til að skapa og yrkja. En hún vinnur að lítilli bók eða „Zine“ eins og það kallast á ensku.
Hvaðan kom hugmyndin?
Hugmyndin að verkefninu kviknaði meðal annars út frá listakonu sem setti saman litla bók um hverfið sitt og allt það sem hún sér í starfinu sínu sem gangbrautarvörður. Ish sótti einnig innblástur frá Bandaríska rithöfundinum, David Sedaris, sem skapar sér gott rými til að hugsa og skapa með því að plokka rusl í Englandi í nokkra tíma á dag.
Nýtir tækifærið til að læra íslensku
Ish nýtir ekki aðeins tímann við plokkunina til að skapa en einnig til að læra íslensku. Hún tekur hlýlega við öllum samtölum á leið sinni um bæinn og allar auka hendur vel þegnar við plokkunina. Hvetur einnig aðra sem eru að læra íslensku að taka þátt í starfinu með sér. Ish hefur til þessa haldið tvo viðburði fyrir fólk til að koma saman að plokka rusl í Hafnarfirði, meðal annars á 17.júní og stefnir á að halda fleiri.
Ish segist mjög spennt fyrir því að halda áfram að plokka rusl hér í Hafnarfirði eftir að skapandi sumarstarfinu lýkur, en stefnir einnig á að halda viðburði í Reykjavík.
Við hvetjum ykkur því eindregið til að fylgjast með þessari skapandi ungu konu og verkefninu hennar HÉR á Instagram, þar er einnig hægt að fylgjast með viðburðum á döfinni sem og nánari upplýsingum um lokahófið í ágúst.
UM SKAPANDI SUMARSTÖRF 2026
Sumarið 2021 ákvað Hafnarfjarðarbær í samstarfi við Ungmennahús bæjarins, Hamarinn, að endurvekja verkefnið “Skapandi sumarstörf” sem hafði verið starfrækt sumarið 2017. Þá bauðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Valdir hópar fengu tækifæri til að starfa við ýmis skapandi verkefni á ýmsum sviðum lista sem einnig myndu lífga upp á mannlífið í bænum, gleðja ferðamenn og íbúa með einum eða öðrum hætti. Starfsfólki Skapandi sumarstarfa, sem rekið er sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað að glæða bæinn lífi, gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. Verkefnin eru fjölbreytt og höfða til mismunandi aldurshópa og áhugasviða.
Í ár eru níu fjölbreytt verkefni sem starfa á vegum skapandi sumarstarfa og verða þau kynnt vikulega út sumarið.




