Skólaárið 2025 – 2026 að hefjast í Hafnarfirði

Fréttir

Grunnskólastarfið í Hafnarfirði er nú að hefjast. Ellefu grunnskólar eru í Hafnarfirði og má nú búast við auknu lífi á götum bæjarins. Fögnum rútínuninni. Fögnum haustverkunum saman. Já, það er gaman í skólanum.

Skólarnir lifna við á ný

Grunnskólastarfið í Hafnarfirði hefst á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst. Skólarnir fyllast á ný af lífi þegar nemendur mæta til skólasetningar eftir sumarfrí.

Starfsfólk grunnskólanna hefur undanfarna daga undirbúið skólastarfið, skipulagt kennslu og tekið þátt í fræðslu og starfsþróun. Meðal stærri verkefna í upphafi skólaárs er innleiðing gagnreyndra lestrarkennsluaðferða í 1. og 2. bekk grunnskóla Hafnarfjarðar.

Ellefu grunnskólar eru í Hafnarfirði. Níu þeirra eru reknir af Hafnarfjarðarbæ en Barnaskóli Hjallastefnunnar og NÚ – framsýn menntun eru sjálfstætt starfandi. Við óskum Nú til hamingju með afmælið sem skólinn hélt um helgina.

Skólasetning með ólíkum hætti

Fyrirkomulag skólasetningar er mismunandi eftir skólum og árgöngum. Foreldrar og forráðafólk eru hvött til að kynna sér tímasetningar og nánara skipulag á heimasíðu síns skóla eða í upplýsingum sem hafa borist frá skólanum.

Umferð eykst við skólana þegar skólastarfið hefst. Ökumenn eru hvattir til að sýna sérstaka aðgát, virða hámarkshraða og hafa í huga að mörg börn eru að fóta sig á nýjum leiðum í skólann. Foreldrar og forráðafólk eru jafnframt hvött til að fara yfir öruggustu leiðina í skólann með börnum sínum.

Við bjóðum nemendur, fjölskyldur þeirra og starfsfólk hjartanlega velkomin til starfa og óskum þeim velfarnaðar á nýju skólaári.

Nánari upplýsingar um stundaskrá og tímasetningar skólasetninga í hverjum skóla má finna á vefjum skólanna.

Heimasíður grunnskólanna:

Já, nú kemst röð og regla á mörg hafnfirsk heimili! Lengi lifi rútínan.

Ábendingagátt