Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Umsóknarfrestur frá: 30.04.2024
Umsóknarfrestur til: 14.05.2024
Tengiliður: Guðbjörg Hjaltadóttir
Deila starfi
Skemmtilegt starf með skemmtilegasta fólkinu.
Hraunvallaleikskóla óskar eftir deildarstjóra til starfa í fullt starf.
Hraunvallaleikskóli er sex deilda leikskóli staðsettur á völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingum sem hafa metnað fyrir starfinu.
Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2024.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 6645844 og Þórhildur Sif Þórmundsdóttir í síma 8929822 eða thorhildurt@hraunvallaskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur framlengdur til og með 14. maí 2024.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur frá: 01.09.2023
Umsóknarfrestur til: 31.08.2024
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Umsóknarfrestur frá: 15.05.2024
Umsóknarfrestur til: 29.05.2024
Tengiliður: Svanhildur Birkisdóttir
Leikskólinn Víðivellir auglýsir eftir deildarstjóra í fullt starf. Þarf að geta hafið störf í ágúst 2024 eða eftir samkomulagi.
Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær rekur og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf og í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Leikskólinn er staðsettur við skemmtileg útivistarsvæði, stutt er í fjöru og hraun. Auk þess er lögð sérstök áhersla á vinnu með orðaforðanámskrá leikskólans, tákn með tali og skipulagða hreyfingu.
Á Víðivöllum starfar áhugasamur og metnaðarfullur hópur leikskólakennara, þroskaþjálfa, starfsmanna með aðra háskólamenntun og leikskóla- og frístundaliða. Lögð er sérstök áhersla á öfluga og samþætta þjónustu við þau börn sem þurfa á að halda og fjölskyldur þeirra og er skólinn í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhildur Birkisdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-3599
Umsóknarfrestur til 29. maí 2024
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2024.
Umsóknarfrestur frá: 16.05.2024
Umsóknarfrestur til: 30.05.2024
Tengiliður: Helena Unnarsdóttir
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa innan barnaverndar. Um er að ræða 100% stöðugildi og tímabundið í eitt ár. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem, ekki síðar en 1. september nk.
Hafnarfjarðarbær vinnur eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og hefur frá árinu 2017 þróað verklag í snemmbærum stuðningi í þjónustu við leik- og grunnskólabörn sveitafélagsins. Áhersla er lögð á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum með aukinni samvinnu aðila í nærumhverfinu.
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.
Nánari upplýsingar veitir Helena Unnarsdóttir, deildarstjóri barnaverndar Hafnarfjarðar helenau@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Sálfræðingafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til 30. maí nk.
Ferilskrá, kynningarbréf og starfsréttindi fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur frá: 17.05.2024
Umsóknarfrestur til: 31.05.2024
Tengiliður: lars@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á yngsta eða miðstigi skólaárið 2024-2025.
Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2024.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 31. maí 2024.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Tengiliður: Michelle Sonia Horne
Við leitum að deildarstjóra í öflugan hóp stjórnenda þar sem lögð er áhersla á samvinnu innan hópsins en jafnframt að hver og einn deildarstjóri fái sjálfstæði og svigrúm til að þróa sína deild í anda starfsaðferða skólans.
Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru “Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins”
Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir, harpako@hafnarfjordur.is og Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri michelleho@hafnarfjordur.is sími 517-5920.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2024
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Tengiliður: Dögg Gunnarsdóttir
Lækjarskóli auglýsir eftir kennara á yngsta stigi í 100% starf haustið 2024.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Við auglýsum nú eftir kennara á yngsta stigi sem jafnframt er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullri þróun starfsins í Lækjarskóla.
· Annast almenna umsjónarkennslu á yngsta stigi með fjölbreyttum kennsluháttum.
· Vinna að þróun UDL og annarri skólaþróun í Lækjarskóla í samvinnu við skólasamfélagið.
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við skólasamfélagið
· Starfa samkvæmt SMT-skólafærni
· Taka þátt í stefnumótun skólans.
· Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari (leyfisbréf skal fylgja umsókn).
· Kennslureynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum á yngsta stigi æskileg.
· Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
· Mjög góð íslenskukunnátta
· Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor.
· Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Stundvísi og samviskusemi
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.
Hafðu samband við Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra í síma 6645877 dogg@laekjarskoli.is eða Örnu B. Arnardóttur, aðstoðarskólastjóri, arna@laekjarskoli.is .
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2024.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Tengiliður: Björn Bögeskov Hilmarsson
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða tækjamann í þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöð heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðugildi í dagvinnu, auk bakvakta.
Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir.
· Viðhald og viðgerðir á götum, göngustígum, niðurföllum, regnvatnslögnum o.fl.
· Snjómokstur og hálkueyðing á götum og göngustígum
· Viðhald, umhirða og viðgerðir á opnum svæðum og á stofnanalóðum
· Viðhald, viðgerðir, umhirða og eftirlit með eignum sem tilheyra bænum
· Ýmis þjónusta við bæjarbúa
· Ýmis vinna og flutningar fyrir stofnanir bæjarins
· Vinna við hátíðarhöld og viðburði á vegum bæjarins
· Önnur verkefni skv starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
· Meiraprófsréttindi C eða C1
· Reynsla af sambærilegum störfum kostur
· Marktæk og góð reynsla af akstri stærri tækja
· Reynsla af almennum verkamannastörfum æskileg
· Jákvætt viðmót þjónustulund, samstarfs- og samskiptahæfni
· Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð
· Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér
· Íslenskukunnátta æskileg
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.
Nánari upplýsingar um starfið veita Björn Bögeskov Hilmarsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: boddi@hafnarfjordur.is og Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: siggih@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 31.maí 2024.
Tengiliður: Hrönn Bergþórsdóttir
Auglýst er eftir skrifstofustjóra í 100% starf í Víðistaðaskóla.
Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar náið með stjórnendateymi skólans.
Í Víðistaðaskóla eru um 520 nemendur í 1. – 10. bekk.Leiðarljós skólans eru Ábyrgð, virðing, vinátta og grundvallast starf skólans af þeim gildum.
Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Í skólanum er skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið áhugavert og skemmtilegt. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkun spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.
Helstu verkefni skrifstofustjóra:
Menntunar – og hæfnikröfur:
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri, hronn@vidistadaskoli.is í síma 664-5890 eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, valaj@vidistadaskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.
Umsóknarfrestur frá: 20.05.2024
Umsóknarfrestur til: 03.06.2024
Besta starf í heimi með besta fólkinu
Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða kennara í 50-100% starf.
Hraunvallaleikskóli er sex deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn vinnur að þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun. Mjög gott samstarf er við Hraunvallaskóla en leikskólinn er í sama húsnæði og grunnskólinn. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.
Ráðið er í starfið frá ágúst 2024 eða samkomulagi.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 6645844
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2024
Umsóknarfrestur frá: 21.05.2024
Umsóknarfrestur til: 05.06.2024
Tengiliður: Margrét Halldórsdóttir
Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í hlutastarf, á frístundaheimilið Álfakot.
Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 – 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10 – 12 ára börn. Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Starfið felur í sér stuðning og stýra hópum í frístundastarfi skólans.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 230. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri í netfanginu, margreth@engidalsskoli.is eða í síma 555-4433.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2024.
Ráðið er í stöðuna frá og með ágúst 2024.
Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í fullt starf.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, í vetur eru nemendur um 240.
Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vellíðan
Starfið felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur á skólatíma og stýra hópum í frístundastarfi skólans.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, margreth@engidalsskoli.is í síma 5554433.
Ráðið er í stöðuna frá ágúst 2024.
Umsóknarfrestur til: 04.06.2024
Tengiliður: Elísabet Karlsdóttir
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir kennara í fullt starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Upplýsingar um starfið veita Telma Ýr Friðriksdóttir leikskólastjóri og Elísabet Karlsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-4941 eða í gegnum netfangið bjarkalundur@hafnarfjordur.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 4. júní 2024.
Tengiliður: Kristinn Guðlaugsson
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða verkefnastjóra í félagsmiðstöð.
Skemmtilegt og gefandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöð.
Starf verkefnastjóra er fjölbreytt og skemmtileg. Verkefnastjóri ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Verkefnastjóri ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Verkefnastjóri vinnur náið með deildarstjóra tómstundamiðstöðva.
Markmið starfsins er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli og að skapa vettvang þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að efla sjálfstraust sitt og félagsfærni með því að sýna frumkvæði, axla ábyrgð og sýna sjálfstæði í vinnubrögðum. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfða til ólíkra hópa með mismunandi áhugasvið og bjóða upp á örugg rými.
Um er að ræða 50%-100% starf. Vinnutími er að hluta til á kvöldin á virkum dögum og dagvinna. Fjölbreyttur vinnutími í boði.
Nánari upplýsingar um starfið veita Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar, margretm@hvaleyrarskoli.is í síma 847 8424 eða Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833. Sími skólans er 565 0200. Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan ágúst
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Visku.
Umsóknarfrestur frá: 13.05.2024
Umsóknarfrestur til: 28.05.2024
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennarar í Bjarg, móttökudeild fyrir börn í leit að alþjóðlegri vernd.
Í Hvaleyrarskóla eru um 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus og markvissar málörvunar ásamt áherslu á skák- og sviðslistarkennslu.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664-5833, Alda Guðrún Áskelsdóttir, deildarstjóri Bjargs, aldaa@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5860 eða í síma skólans 565-0200.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2024. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.
Umsóknarfrestur til: 27.05.2024
Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í fullt starf.
Hraunvallaleikskóli er sex deilda leikskóli staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Dewey og einkennist leikskólastarfið af fjölmenningu þar sem m.a. er virðing borin fyrir einstaklingnum, menningu og uppruna hans og allir hafa sama tækifæri til náms. Leikskólinn vinnur að þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun. Gildi leikskólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð sem endurspegla allt starf leikskólans.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað og áhuga fyrir starfinu.
Ráðið verður í starfið eftir samkomulagi.
Upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg leikskólastjóri gudbjorgh@hraunvallaskoli.is eða í síma 644-5844
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2024.
Ferilskrá, prófskírteini og starfsleyfi fylgi umsókn.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem liðsmaður hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga með fötlun og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem persónulegur ráðgjafi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með persónulegri ráðgjöf er að veita börnum og unglingum stuðning til að takast á við persónuleg og félagsleg vandamál og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Tengiliður: Ólafía Guðmundsdóttir
Leikskólinn Hlíðarberg óskar eftir að ráða kennara í fullt starf.
Leikskólinn Hlíðarberg er 5 deilda leikskóli í Setbergshverfi. Þar dvelja að jafnaði 94 börn og starfa 32 starfsmenn. Einkunnarorð leikskólans er hreyfing, sköpun, vellíðan og tekur starfið mið af þeim. Unnið er eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Leikrými barnanna er gott og listasmiðja á hverri deild. Sameiginlegur salur er fyrir allar deildir. Góð vinnuaðstaða er fyrir starfsfólk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri olafia@hafnarfjordur.is. Einnig er hægt að hafa samband í síma: 578 4300.
Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 27 maí 2024.
Umsóknarfrestur frá: 03.04.2024
Tengiliður: Tinna Dahl Christiansen
Ákveðið hefur verið að opna fyrir umsóknir á biðlista fyrir sumarstarf hjá Hafnarfjarðarbæ, 18 ára og eldri. Biðlistinn verður opinn til og með 31. maí 2024.
Á þessari stundu er alls óvíst hvort ráðið verður af biðlistanum og eru umsækjendur hvattir til að sækja einnig um annars staðar.
Vinnuskólinn býður upp á fjölbreytt störf t.d. við flokkstjórn, slátt, garðyrkjustörf, sumarnámskeið og fleira.
Fyrirspurnir má senda á skrifstofu Vinnuskólans á vinnuskoli@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur frá: 24.04.2024
Umsóknarfrestur til: 23.05.2024
Tengiliður: valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Öldutúnsskóli auglýsir eftir heimilisfræðikennara.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is og Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2024.
Umsóknarfrestur frá: 07.05.2024
Umsóknarfrestur til: 24.05.2024
Tengiliður: Valdimar Víðisson
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á miðstigi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí n.k.
Umsóknarfrestur frá: 10.05.2024
Öldutúnsskóli auglýsir eftir sérkennara í sérdeild.
Í Öldutúnsskóla er sérdeild fyrir nemendur á unglingastigi með væga þroskaröskun og er opin öllum skólahverfum bæjarins. Deildin starfar samkvæmt lögum um grunnskóla en þar er kveðið á um að nemendur með sérþarfir fái viðeigandi kennslu og stuðning í heimaskóla. Allir nemendur sérdeildarinnar eru skráðir í almenna bekki skólans. Sá bekkur sem nemandinn er skráður í er í daglegu tali nefndur tengslabekkur og taka nemendur þátt í bekkjarstarfinu að einhverju marki. Einstaklingsnámskrá er gerð fyrir nemendur í upphafi skólaárs og endurmetin við annarskil. Við reglulegt mat á námi nemenda eru framfarir metnar og tekið er tillit til breytinga við gerð nýrrar áætlunar.
Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 27. maí nk.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur til: 26.05.2024
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða kennara í tónmennt fyrir skólaárið 2024-2025.Um er að ræða 50-70% starf vegna leyfis
Í Hvaleyrarskóla eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, markvissar málörvunar og byrjendalæsis ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2024. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, markvissar málörvunar og Byrjendalæsis.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024. Umsóknarfrestur er til og með 26. maí næst komandi. Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Tengiliður: Eymundur Björnsson
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða tvo starfsmenn í tækniumsjón í þróunar- og tölvudeild bæjarins.
Starfið felst í að vinna að daglegum rekstri tölvukerfa og notendalausna og styðja þannig við þróun, innleiðingu nýrra og eldri kerfa. Fylgja stefnum og verklagsreglum deildarinnar og veita bestu mögulegu þjónustu hverju sinni með það að markmiði að notendur kerfa og lausna nái að nýta sér þau sem best í störfum sínum. Megináhersla verður á menntastofnanir bæjarins.
Hafnarfjarðarbæ hefur verið leiðandi bæjarfélag við innleiðingu á stafrænum lausnum og vill vera þar í fararbroddi. Tölvudeild fer með stjórnun og stefnumótun í tölvumálum bæjarins og tengdra stofnana, ásamt samhæfingu og eftirlit. Deildin sér um rekstur allra tölvukerfa og að meðhöndlun gagna sé í samræmi við þarfir bæjarins og öryggiskröfur.
Nánari upplýsingar veitir Eymundur Björnsson, deildarstjóri tölvudeildar, eymundur@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí nk.
Umsókninni fylgi ferilskrá.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Tengiliður: Margrét Heiða Magnúsdóttir
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Verið
Félagsmiðstöðin Verið býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Verið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.
Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið margretm@hvaleyrarskoli.is eða Kristinn Guðlaugsson skólastjóri í síma 664-5833 eða í gegnum netfangið kristinn@hvaleyrarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2024.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar