Deildarstjóri yngsta stigs – Lækjarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 11.04.2024

Umsóknarfrestur til: 25.04.2024

Tengiliður: dogg@laekjarskoli.is

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í Lækjarskóla.  

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með þrjú meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan og samvinna

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag. 

Fyrir nokkrum árum hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíkan hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stýrir daglegu starfi á yngsta stigi í samvinnu við skólastjórnendur, kennara og foreldra
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í uppbyggingu öflugrar liðsheildar á vinnustaðnum ásamt stjórnunarteymi
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Kennsluréttindi (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Kennslureynsla í grunnskóla kostur
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og /eða uppeldis- eða kennslufræði er kostur
  • Reynsla af- og/eða þekking á SMT-skólafærni æskileg
  • Leiðtogafærni og vilji til að byggja upp sterka liðsheild
  • Frumkvæði, jákvæðni og brennandi áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og samviskusemi.

Nánari upplýsingar veitir Dögg Gunnarsdóttir, skólastjóra í síma 6645877 eða með tölvupósti dogg@laekjarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2024.

Greinagóð ferilsskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf